Norrænt samstarf í heilbrigðismálum á dagskrá fundar í Tromsø: Vilja sameiginlega stefnu í öldrunarþjónustu
Utvalget for Velferd i Norden i Nordisk råd på sommermøte i Tromsø 2025
Norræna velferðarnefndin á sumarfundi sínum í Tromsø 2025. Nefndin saman komin fyrir utan Árdna, menningarhús Sama við háskólann í Tromsø, ásamt kennurum og fræðimönnum við háskólann.
„Norrænt heilbrigðismálasamstarf er mikilvægt vegna þess að norrænu löndin standa frammi fyrir margs konar sameiginlegum áskorunum á borð við hækkandi meðalaldur, geðheilbrigðismál og lífsstílssjúkdóma. Það er árangursríkara að takast á við þessar áskoranir sameiginlega,“ segir Tone Wilhelmsen Trøen, varaformaður nefndarinnar og þingmaður í Noregi.
Nefndin var sammála um að vinna áfram með tillögu til norrænu ríkisstjórnanna um að móta stefnu um öldrunarþjónustu á Norðurlöndum í framtíðinni. Stefnan á að stuðla að inngildandi og sjálfbærri öldrunarþjónustu með sérstakri áherslu á gæði, hreyfanlegt vinnuafl, stafræna inngildingu og aðkomu eldra fólks að ákvarðanatöku. Tillagan nýtur víðtæks stuðnings allra flokkahópa og verður nú send til umsagnar hjá viðeigandi nefndum Norðurlandaráðs.
Fræðileg umfjöllun og norðlæg sjónarmið
Nefndin heimsótti einnig háskólann í Tromsø þar sem sérfræðingar kynntu áskoranir í heilbrigðisþjónustu á norðlægum slóðum, einkum fyrir eldra fólk sem þarf að ferðast langar vegalengdir vegna einfaldra aðgerða. Í kynningunum var jafnframt fjallað um sjónarhorn frumbyggja þar sem tungumál, fjarlægðir og menning geta oft flækt málin enn frekar.
Á dagskrá voru einnig erindi um miðlun heilsufarsgagna, gervigreind í heilbrigðisþjónustu og sýklalyfjaónæmi. Áhersla var lögð á mikilvægi norræns rannsóknasamstarfs þegar kemur að því að berjast gegn sýklalyfjaónæmi. Bæði sýklalyfjaónæmi og öldrunarþjónusta eru á meðal áherslusviða nefndarinnar á árinu 2025, auk málefna barna og ungs fólks í viðkvæmri stöðu.
Ungt fólk, frumbyggjar og þátttaka nærsamfélagsins
Nefndin heimsótti æskulýðshúsið Tvibit sem gegnir mikilvægu hlutverki í vinnunni við að gera Tromsø að æskulýðshöfuðborg Evrópu 2026, fyrsta norrænna borga. Tvibit leggur sérstaka áherslu á að virkja ungt fólk til þátttöku og nálgast það sem auðlind en ekki vandamál. Húsið er gott dæmi um inngildandi opinbera lausn þvert á aldur, með áherslu á ungt fólk.
Fjallað var um sjónarmið Sama í heimsóknum í Árdna, menningarhús Sama hjá háskólanum, og Samíska húsið í Tromsø. Þar var sjónum beint að réttindum Sama, geðheilbrigðismálum, öldrunarþjónustu og þörfinni á menningarlegri aðlögun. Torjer A. Olsen, prófessor við háskólann í Tromsø, og Jill Abelsen Olsen, forstöðukona Samíska hússins, veittu innsýn sína og sjónarmið.
Einnig tók þingmannaráð Sama þátt í fundinum. Beaska Niillas frá þingmannaráði Sama lagði áherslu á mikilvægi þess að samþætta sjónarhorn Sama við vinnu og tilmæli nefndarinnar til norrænu ríkisstjórnanna.
Framhaldið
Fundurinn í Tromsø er hluti af vinnu nefndarinnar við að efla norrænt samstarf á sviði velferðarmála og setja fókus á helstu forgangsmál nefndarinnar árið 2025: öldrunarþjónustu, sýklalyfjaónæmi og málefni barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu. Næsta skref er að senda tillöguna um stefnu í öldrunarþjónustu til umsagnar hjá norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndinni og norrænu þekkingar- og menningarnefndinni svo hægt verði að afgreiða hana á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í haust.