Nýjar norrænar aðgerðir með „One Health“ nálgun

21.11.24 | Fréttir
Ljósmyndari
unsplash.com (collage)
Þrjár ráðherranefndir Norrænu ráðherranefndarinnar eru sammála um að styðja eflt samstarf Norðurlandanna um sýklalyfjaónæmi. Með því er brugðist við þeirri aukni ógn sem steðjar að mannfólki og dýrum af útbreiðslu sýklalyfjaónæmis um allan heim með samþættri One Health-nálgun, þar sem tengslin milli heilsu manna, heilbrigðis dýra og umhverfisins eru viðurkennd.

Sýklalyfjaónæmi er ein stærsta hnattræna ógnin gegn heilsu mannfólks og dýra, sem og matvælaframleiðslu. Sýklalyfjaónæmi er dæmigert „One Health“ vandamál, þar sem ónæmar örverur eða gen flytjast milli manna, dýra og plantna, oft í gegnum umhverfið. Norrænir ráðherrar félags- og heilbrigðismála, umhverfis- og loftlagsmála og fiskveiða, fiskeldis, matvæla og skógræktar kalla nú eftir því að norrænt samstarf um sýklalyfjaónæmi verði eflt.

Við þurfum að efla samstarf okkar á Norðurlöndum til að vera betur í stakk búin til að bregðast við vaxandi ógn ónæmra sýkla gagnvart mönnum og dýrum. Það er auðveldara ef við vinnum saman – milli geira mannfólks, dýra og umhverfisins, og sem einn, sameiginlegur markaður.

- Jakob Forssmed, félags- og heilbrigðisráðherra Svíþjóðar

Afleiðingarnar geta verið alvarlegar fyrir heilsu dýra og manna

Sýkingar af völdum ónæmra örvera geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði heilsu manna og dýra, meðal annars langvinn veikindi og innlögn á sjúkrahúsi, aukna dánartíðni og hættu á sýkingu við skurðaðgerð eða læknismeðferð. Sýklalyfjaónæmi getur einnig leitt til framleiðslutaps í matvælaframleiðslu, sem leiðir til aukinnar notkunar náttúruauðlinda og hærri kostnaðar og minnkar þar með viðnámsþol matvælaframleiðslu á Norðurlöndum.

Sýklalyfjaónæmi er ógn við heilbrigðisþjónustu nútímans, heilsu dýra og matvælakeðjuna, en einnig efnahag okkar. Ónæmið eykst sífellt en við verðum að tryggja að við höfum aðgang að þeim sýklalyfjum sem við þurfum til að meðhöndla sjúklinga og dýr í dag og í framtíðinni.

- Malin Grape, sendiherra sýklalyfjaónæmis, Svíþjóð

Taka þarf nauðsynleg skref sem krefjast þverfaglegrar nálgunar milli allra norrænu landanna til að halda sýklalyfjaónæmi í lágmarki með því að stuðla að skynsamri og ábyrgri notkun sýklalyfja og tryggja aðgang að nauðsynlegum sýklalyfjum og heilbrigðisþjónustu almennt, sem og auka vitund meðal almennings og viðeigandi starfsgreina.

Matvælaframleiðsla á Norðurlönd sýnir að ábyrg notkun sýklalyfja þarf ekki að hafa neikvæð áhrif á efnahagslífið – heilbrigð dýr vaxa hraðar og framleiða betur. Hins vegar krefst hún þekkingar, vilja og þrýstings neytenda til að viðhalda vitund um þetta málefni á Norðurlöndum og til að knýja á um breytingar á dýrahaldi á heimsvísu.

- Peter Kullgren, dreifbýlismálaráðherra Svíþjóðar

Norrænu löndin hafa samþykkt að efla norrænt samtarf með því að styðja hvert annað til að grípa til viðeigandi aðgerða og deila bestu venjum á borð við innleiðingu innlendra aðgerðaáætlana sem fela í sér One Health-sjónarmið, eða þverfagleg samræmingarkerfi til að tryggja skilvirka samræmingu aðgerða milli sviða heilsu manna, heilsu dýra og umhverfisins. Loks er stuðningur við hugsanlegar sameiginlegar aðgerðir sem fela meðal annars í sér að koma á fót norrænu tekjutryggingakerfi og efla þróun nýrra sýklalyfja.

Sjá alla yfirlýsinguna á tenglinum hér að neðan.

Tengiliður