Spurning um tíma – fyrir Úkraínu og Norðurlönd
Volodomír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði rétt í þessu þing Norðurlandaráðs 2024 á Íslandi. Skilaboð Selenskí til norrænna þingmanna og ráðherra í Alþingishúsinu voru skýr.
„Ég er norrænu löndunum þakklátur fyrir stuðning þeirra við Úkraínu, sem er einn sá traustasti í heimi. Ég vonast eftir áframhaldandi stuðningi og auknu samstarfi,“ sagði Selenskí.
Norðurlönd standa með Úkraínu
Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, undirstrikaði við Selenskí að Úkraína nyti áfram stuðnings Norðurlandaráðs:
„Ráðist hefur verið gegn lýðræðislegum gildum og alþjóðlegum reglum og vígvöllurinn er Úkraína. Við stöndum þétt með Úkraínu. Barátta Úkraínumanna er barátta okkar,“ sagði Bryndís.
Úkraína og NATO
Selenskí dró ekki dul á þakklæti sitt fyrir áframhaldandi stuðning Norðurlanda. En Úkraína á enn í stríði og að sögn hans er tímabært að treysta böndin enn frekar með því að Úkraína fái aðild að ESB og NATO.
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, minntist einnig á NATO og nýlega inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í bandalagið:
„Þetta eru sögulegir tímar fyrir Norðurlönd hvað varðar öryggi okkar nú þegar öll norrænu löndin eru aðilar að NATO. Að mínu mati er aðild Úkraínu að NATO í framtíðinni lykillinn að öryggi í Úkraínu og Evrópu allri,“ sagði Birgir.
Ég er norrænu löndunum þakklátur fyrir stuðning þeirra við Úkraínu sem er einn sá traustasti í heimi. Ég vonast eftir áframhaldandi stuðningi og auknu samstarfi
Tími til að fá úkraínsk börn heim
Tími Selenskís Úkraínuforseta er naumur. Hann lauk ávarpi sínu með því að beina kastljósinu að þeim tugþúsundum úkraínsku barna sem Rússar hafa numið á brott frá hernumdum svæðum í Úkraínu. Þau eru nú í Rússlandi þar sem þeim er sögð útgáfa Pútíns af atburðunum. Það er líka kominn tími til þess að fá þau heim, sagði Selenskí að lokum.
Friður og öryggi. Meginþema Norðurlandaráðsþingsins 2024 er Friður og öryggi á norðurslóðum. Áherslan á einnig við um Norðurlönd í heild og er liður í alþjóðlegri stefnu Norðurlandaráðs, t.d. þegar kemur að því að berjast gegn sívaxandi upplýsingaóreiðu og áróðri frá stofnunum og ríkjum sem beinist gegn norrænum borgurum með það fyrir augum að skapa efa um staðreyndir og auka óstöðugleika í samfélögum okkar.