Svjatlana Tsichanoŭskaja gestaræðumaður á þingi Norðurlandaráðs

22.10.24 | Fréttir
Svjatlana Tsichanoŭskaja
Ljósmyndari
Ilya Shashkou
Leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús, Svjatlana Tsichanoŭskaja, mun taka þátt sem gestaræðumaður á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík 30. október. Hún mun meðal annars ræða um mikilvægi stuðnings norrænu landanna fyrir lýðræðisstarfið í Belarús.

Svjatlana Tsichanoŭskaja bauð sig fram í forsetakosningunum í Belarús 2020 og hefur síðan þá verið í útlegð eftir að Aleksandr Lukasjenko var kjörinn sem forseti í kosningum sem óháðir aðilar gagnrýndu sem niðurstöðu umfangsmikils kosningasvindls.

„Belarúsneska þjóðin hefur valið lýðræði og hún á skilið fullan stuðning alþjóðasamfélagsins. Þingmenn á Norðurlöndum og öðrum löndum gegna lykilhlutverki til að augun beinist áfram að Belarús á alþjóðavettvangi. Saman getum við tryggt að Belarús verði ekki lengur útvarðarstöð einræðis, heldur frjáls, sjálfstæð og lýðræðisleg þjóð í Evrópufjölskyldunni,“ segir hún.

 

Mikilvægur stuðningur Norðurlanda

Í ræðu sinni mun Svjatlana Tsichanoŭskaja meðal annars fjalla um mikilvægi þess að Norðurlöndin styðji áfram lýðræðisstarfið í Belarús. Hún leggur áherslu á að Hvíta-Rússland tilheyrir fjölskyldu Evrópuþjóða.

Tsichanoŭskaja lítur einnig á framtíð Belarús sem mikilvægan lið í framtíðaröryggi allrar Evrópu.

Ræðu hennar á þinginu verður streymt í beinni á norden.org á miðvikudaginn 30. október kl. 10.00 að íslenskum tíma