Ungt fólk knýr áfram baráttuna gegn loftslagsbreytingum og norrænn sjóður styður við átakið
Norræni æskulýðssjóðurinn um loftslagmál og líffræðilega fjölbreytni var stofnaður árið 2024. Sjóðurinn er afrakstur víðtæks pólitísks samráðs á milli Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, sem fjármagnar sjóðinn, og danska æskulýðsráðsins Dansk Ungdoms Fællesråd (DUF) sem hefur umsjón með honum. Það voru norræna sjálfbærninefndin og Norðurlandaráð ungmenna sem lögðu stofnun sjóðsins til.
Úr sjóðnum eru veittir styrkir til margvíslegra verkefna á vegum ungs fólks og sem þátttakendur frá að minnsta kosti tveimur norrænum löndum standa að. Markmiðið með sjóðnum er að efla áhrif ungs fólks þegar kemur að loftslagsmálum og líffræðilegri fjölbreytni og veita því tækifæri til að koma hugmyndum í framkvæmd í hagnýtum verkefnum þvert á landamæri.
Ungt fólk kom saman á Álandseyjum
Á meðal verkefna sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum er Catalysts for Change sem Regeneration 2030 stóð að. Það var viðburður sem haldinn var á Álandseyjum þar sem kom saman ungt fólk frá öllum Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu. Þátttakendur öðluðust þar þekkingu, verkfæri og sambönd til þess að grípa til aðgerða í þágu loftslagsins og líffræðilegrar fjölbreytni, jafnt heima fyrir sem á svæðinu í heild. Fyrir sum hafði fundurinn þau áhrif að þeim fannst þau vera hluti af stærri hreyfingu:
„Stundum líður manni eins maður sé ein að reyna að breyta einhverju en þegar maður hittir ungt fólk frá öllum Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum upplifir maður virkilega að við getum áorkað einhverju,“ sagði Livya Adrian, ein þátttakenda.
Nýtt umsóknartímabil hafið
Nú er aftur opið fyrir styrkumsóknir. Styrki má nýta til ýmiss konar aðgerða, svo sem upplýsingaherferða, náttúruferða, málþinga, hlutverkaleikja og sameiginlegrar loftslagspólitíkur. Hægt er að sækja um styrki á bilinu 25 til 250 þúsund danskar krónur.
Staðreyndir
- Sjóðurinn styrkir aðgerðir og verkefni á Norðurlöndum sem eru á sviði loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni og styrkja tengsl á milli ungs fólks þvert á norræn landamæri.
- Fólk yngra en 30 ára frá öllum norrænu löndunum getur sótt um styrk úr sjóðnum. (Danmörk, Finnland, Færeyjar, Grænland, Ísland, Noregur, Svíþjóð og Álandseyjar)
- Hægt er að sækja um styrki á bilinu 25 þúsund til 250 þúsund danskar krónur.
- Umsóknarfrestur er 8. desember 2025.
Nánari upplýsingar og umsókn: Norrænn sjóður um loftslagmál og líffræðilega fjölbreytni – Dansk Ungdoms Fællesråd