Við leitum að ungu fólki á aldrinum 18–30 ára til að taka þátt í æskulýðsáætlun
Youth voices are an important part of the Nordic Council of Ministers programs in Demcracy Festivals around the Nordic region
Ef þú ert ekki í markhópnum biðjum við þig um að koma þessum skilaboðum áfram til vina, ættingja eða annarra sem þú telur að gætu hentað. Hjálpaðu ungu fólki að skipuleggja og taka þátt í lýðræðislegum ferlum á Norðurlöndum.
Við leitum að ungu fólki víðs vegar um Norðurlönd til að taka sæti í matsnefnd styrkjaáætlunar sem nefnist „Norðurlönd 0–30“. Um er að ræða launað hlutverk til þriggja ára, með þremur fundum á ári. Sumir verða haldnir á staðnum í Helsinki (ferðakostnaður greiddur) og hópurinn ákveður í sameiningu hvaða verkefni fá fjármagn. Öll verkefnin verða að hafa börn og ungt fólk á Norðurlöndum í lykilhlutverki.
Þetta er góð þjálfun í stjórnarsetu, að fara yfir umsóknir fjölbreyttra umsækjenda og meta áhrif og ávinning verkefna.
Hópurinn kýs sér talsmann eða talskonu og starfar sjálfstætt og í góðri samvinnu.
Mismunandi reynsla og sjónarhorn eru metin svo þú skalt sækja um ef:
- þú hefur reynslu af verkefnum þar sem börn og/eða ungt fólk tekur virkan þátt
- þú býrð yfir sjónarhornum sem tengjast menningarlegum bakgrunni þínum, sjálfboðastörfum, pólitískum, félagslegum eða listrænum verkefnum eða aðgerðastarfi
Um starfið
- Tímabilið er þrjú ár (2026–2028).
Nefndin heldur þrjá fundi á ári (á netinu eða í eigin persónu). - Þú þarft að lesa og meta umsóknir rafrænt og taka virkan þátt í umræðum á fundum.
- Þú færð þóknun og greiddan ferðakostnað vegna funda á staðnum í Helsinki.
Það sem við leitum að
- Við viljum að nefndarmenn séu með fjölbreyttan landfræðilegan og tungumálalegan bakgrunn og reynslu.
- Þú þarft að geta tjáð þig á ensku og að minnsta kosti einu skandinavísku máli. Þú þarft að geta lesið umsóknir á öllum skandinavísku málunum (dönsku, norsku og sænsku).
- Þú þarft að vera búsettur á Norðurlöndum (ríkisfang er ekki skilyrði).
- Þú mátt ekki þiggja styrk úr áætluninni á tímabilinu og þú þarft að vera vakandi fyrir hagsmunaárekstrum í einstaka málum.
- Þú þarft að vera á aldrinum 18 til 30 ára.
Sæktu um fyrir 29. október kl. 29.59 að finnskum tíma eða 20.59 að íslenskum tíma