Viðbúnaðarmál og samkeppnishæfni í brennidepli á fundi forsætisráðherranna

28.10.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Ninni Andersson/Regeringskansliet
Samkeppnishæfni og viðbúnaðarmál voru á dagskrá þegar leiðtogar norrænu ríkisstjórnanna hittust í Stokkhólmi á þriðjudaginn. Einnig var rætt um mikilvægi aukins samstarfs, jafnt á norrænum sem evrópskum vettvangi.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, tók þátt í fundinum. Hún lofaði norrænt samstarf, ekki síst vegna stuðningsins við Úkraínu, bæði á blaðamannafundinum að loknum fundinum og í ræðu sinni til Norðurlandaráðs í sænska þinghúsinu síðar um daginn.

„Ég lít á norrænu löndin sem Leiðarstjörnuna í Evrópu því þið vísið oft veginn þegar kemur að viðbúnaðarmálum,“ sagði Ursula von der Leyen.

Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, sem fer fyrir norrænu forsætisráðherrunum á árinu 2025, lagði einnig áherslu á mikilvægi samstarfs, bæði með tilliti til viðbúnaðarmála og samkeppnishæfni.

„Við vitum að lítil lönd þurfa að vinna saman til að vera sterkari,“ sagði Petteri Orpo.

Stuðningur við framtíðarsýn fyrir 2030

Fundur forsætisráðherranna var haldinn í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, tók einnig þátt í fundinum, þar sem forsætisráðherrarnir ítrekuðu vilja sinn til að vinna að markmiðum hinnar norrænu framtíðarsýnar um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.

Síðdegis tóku forsætisráðherrarnir þátt í fundi með Norðurlandaráði. Þar fengu þingmenn ráðsins tækifæri til að leggja fyrirspurnir beint fyrir forsætisráðherrana. Fjöldi málefna var tekinn upp, meðal annars hugsanleg endurskoðun Helsingforssamningsins, sem einnig er nefndur norræna stjórnarskráin.