Volodimír Selenskí gestur á þingi Norðurlandaráðs
Í heimsókn sinni til Íslands mun Selenskí einnig hitta þá norrænu forsætisráðherra sem verða á landinu vegna þingsins. Þeir munu halda tvíhliða fundi og munu einnig halda sameiginlegan blaðamannafund.
Mikill heiður fyrir Norðurlandaráð
Bryndís Haraldsdóttir forseti Norðurlandaráðs og Oddný G. Harðardóttir varaforseti segja að mikill heiður sé að fá Selenskís í heimsókn.
Við erum bæði stoltar og glaðar að sjá að stuðningur Norðurlanda við Úkraínu er bæði öflugur og gengur þvert á hið pólitíska litróf. Allt frá allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu árið 2022 hafa norrænu löndin stutt Úkraínu með virkum hætti í baráttu sinni
Mikilvægur þáttur í alþjóðastefnunni
Frá sjónarhorni Norðurlandaráðs er einnig vert að benda á að mikilvægt er að halda vinnunni áfram við að minna almenning á og upplýsa um af hverju svo mikilvægt er að halda stuðningi við Úkraínu áfram. Á Norðurlöndum ríkir traust en við þurfum að vera meðvituð um að rússneskum áróðri er dreift í sífellu og hann verður sífellt meira áberandi, líka hér á Norðurlöndum.
Vinnan fyrir lýðræði, réttarríkið og mannréttindi er mikilvægur þáttur í alþjóðastefnu Norðurlandaráðs og í því felst einnig öflugur stuðningur við Úkraínu
Á síðustu árum hefur Norðurlandaráð lýst með ýmsum hætti yfir stuðningi við Úkraínu. Á þemaþinginu vorið 2022 var þemað „Hvernig geta Norðurlönd aðstoðað Úkraínu?“ og í samvinnu við Eystrasaltsþingið var sama ár haldinn sameiginlegur fundur til að ræða áhrifin af stríði Rússlands í Úkraínu. Á Norðurlandaráðsþingum árin 2022 og 2023 var einnig rætt um stuðning við Úkraínu.
Ávarpi Selenskís til þingfulltrúa Norðurlandaráðs verður streymt beint hér (tímasetning tilkynnt síðar)