Vegvísir fyrir eldsneytisumskipti norrænna vöruflutninga afhentur norrænum ráðherrum
Vegvísir fyrir eldsneytisumskipti norrænna vöruflutninga var formlega afhentur norrænum ráðherrum í dag á ráðstefnunni High-Level Conference on Green Shipping in the Nordic Region í Kaupmannahöfn.
„Norræna ráðherranefndin er stolt af því að hafa hjálpað til við að gera þetta umfangsmikla og metnaðarfulla samstarf opinberra aðila og einkaaðila að veruleika. Við munum áfram styðja sjö grunnþætti vegvísisins með víðri þverfaglegri áherslu á græn umskipti í bláum efnahag okkar. Þetta eru mikilvægar vörður á leið Norðurlandanna að því að verða sjálfbærasta svæði heims,“ segir Ida Heimann Larsen, aðstoðarframkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norræna ráðherranefndin er stolt af því að hafa hjálpað til við að gera þetta umfangsmikla og metnaðarfulla samstarf opinberra aðila og einkaaðila að veruleika. Við munum áfram styðja sjö grunnþætti vegvísisins með víðri þverfaglegri áherslu á græn umskipti í bláum efnahag okkar. Þetta eru mikilvægar vörður á leið Norðurlandanna að því að verða sjálfbærasta svæði heims.
Metnaðarfull svæðisbundin loftlagsmarkmið fyrir vöruflutninga
Samhliða skuldbindingu gagnvart alþjóðlegum markmiðum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar um minnkaða losun skipasiglinga hafa Norðurlöndin einnig skuldbundið sig til að uppfylla metnaðarfull svæðisbundin loftlagsmarkmið fyrir vöruflutninga. Þar á meðal eru snemmbúnar skuldbindingar um kolefnishlutleysi árið 2050, að vinna að framgangi sjálfbærs hagkerfis hafsins og grænna umskipta, samstarf um samgöngur, innviði og orkuframboð og stofnun grænna vöruflutningaleiða. Til að minnka kolefnislosun þurfa vöruflutningar að skipta yfir í kolefnislaust eldsneyti og vegvísisáætlunin bendir á þrjár meginhindranir fyrir upptöku þess á svæðinu:
- Eftirspurn og kostnaður – skortur á eftirspurn eftir kolefnislausum vöruflutningum og kostnaðarsamkeppnishæfi kolefnislauss eldsneytis.
- Framboð á eldsneyti – skortur á þróun aðfangakeðjunnar á landi, þar á meðal eldsneytisframleiðslu og hráefnaöflunar, dreifingar og eldsneytistökuinnviða.
- Tækni og öryggi – lítill þroski eldsneytistækni og öryggisreglugerða, bæði á landi og á skipum.
Skýrslan lýsir einnig sjö grunnþáttum sem skiptast niður í 20 sértækar aðgerðir sem þarf að taka fyrir árið 2030 til að sigrast á samtengdum hindrunum. Aðgerðirnar mynda sérstaka vinnupakka sem ríkisstjórnir og hagsmunaaðilar iðnaðarins verða að vinna saman að og vinna að samhliða til að auka notkun kolefnislauss eldsneytis.
Kostnaðarbilið brúað fyrir kolefnislaust eldsneyti
Lykilráðleggingar vegvísisins undirstrika hina áríðandi þörf fyrir aðgerðir hins opinbera til að brúa kostnaðarbil kolefnislauss eldsneytis og hraða á innleiðingu samkeppnishæfra útboða fyrir grænar vöruflutningaleiðir. Samkvæmt áætluninni verður fyrsta leiðin tilbúin til notkunar árið 2025, þrjár aðrar árið 2026 og sex í viðbót fyrir lok árs 2028. Til að byrja með þarf að leggja mesta áherslu á þróun áætlunar fyrir svæðisbundna samþættingu eldsneytisframleiðslu og innviða.
„Vegvísirinn er verðugt framtak sem, ásamt öðrum alþjóðlegum aðgerðum í átt að kolefnisminnkun, markar skýra leið fyrir samstarf um norræna vöruflutninga til minnka kolefnislosun, meðal annars með upptöku kolefnislauss eldsneytis og grænum flutningaleiðum. Við hjá MAN Energy Solutions fögnum því að fá tækifæri til að starfa með aðilum sem eru á sömu bylgjulengd og erum meira en fús til að koma með sérfræðiþekkingu okkar á knúningi skipa og öðrum eldsneytisgjöfum að borðinu í leitinni að kolefnishlutleysi,“ sagði Bjarne Foldager, yfirvaraforseti og yfirmaður Two-Stroke Business í Danmörku, MAN Energy Solutions.
„Við hvetjum norrænu ríkisstjórnirnar til að bregðast skjótt við þeim áríðandi aðgerðum sem bent er á í Fuel Transition Roadmap for Nordic Shipping. Með því myndi skapast öryggi fyrir iðnaðinn til að fjárfesta í skipum sem geta gengið fyrir kolefnislausu eldsneyti og þeim eldsneytisinnviðum sem þarf fyrir þau. Samstarf milli landa og yfir virðiskeðjuna mun skipta lykilmáli til að iðnaðurinn geti sigrast á helstu hindrununum og uppfyllt metnaðarfull markmið um kolefnisminnkun. Með því að vera í fararbroddi geta Norðurlönd ekki aðeins stuðlað að verðmætasköpun og aukið útflutning heldur einnig gegnt lykilhlutverki í eldsneytisumskiptum í heiminum,“ sagði Knut Ørbeck-Nilssen, forstjóri Maritime, DNV.