Norrænir orkumálaráðherrar styrkja samstarf um öryggi og samkeppnishæfni
Orkuöryggi var ofarlega á baugi og ráðherrarnir gáfu út sameiginlega yfirlýsingu.
- Í yfirlýsingunni kemur fram sameiginlegt norrænt markmið: að viðhalda og styrkja viðnámsþrótt svæðisins, sjálfbærni og samkeppnishæfni og stuðla þannig að hreinni og sjálfstæðari Evrópu sem ekki er háð rússnesku gasi, sögðu formennskuráðherrarnir Sari Multala frá Finnlandi og Camilla Gunell Álandseyjum.
Með hinni alvarlegu stöðu öryggismála í Evrópu og á Norðurlöndum og breyttri ásýnd bandalags þvert á Atlantshafið hefur norræna samstarfinu verið skipaður enn mikilvægari sessi hvað varðar viðnámsþrótt svæðisins. Ráðherrarnir lögðu áherslu á að þrátt fyrir mismunandi forsendur og forgangsröðun landanna þá deila þau ýmsum sameiginlegum áskorunum og tækifærum sem best er að takast á við í sameiningu.
Viðræður við staðgengil ráðherra Úkraínu
Mikilvægur liður á fundinum var samtal við Roman Andarak, staðgengil orkumálráðherra Úkraínu, sem tók þátt í gegnum netið og deildi reynslu af því að halda uppi orkuöflun við afar krefjandi aðstæður. Norrænu ráðherrarnir lýstu yfir miklu þakklæti fyrir framlag hans og staðfestu vilja sinn til að halda fast í samstarfið við Úkraínu – bæði nú og við enduruppbyggingu orkukerfis landsins.
Norrænt samstarf getur stutt við landsbundin verkefni
Ráðherrarnir ræddu hvernig norræna samstarfið getur stutt við landsbundin verkefni. Norðurlönd eru vel í stakk búin til að vera í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar orkuöryggi og græn umskipti, einnig á norðurslóðum þar sem möguleikar á endurnýjanlegri orku eru miklir. Á sama tíma var rætt um mikilvægi samkeppnishæfni. Aðgangur að loftslagsvænni raforku á sanngjörnu verði hefur verið styrkur fyrir iðnað á Norðurlöndum og þar gegnir virkur norrænn raforkumarkaður mikilvægu hlutverki. Aukin rafvæðing, fjölgun gagnavera og meiri vetnisframleiða krefst verulegra fjárfestinga raforkukerfinu. Ráðherrar undirstrikuðu þörfina fyrir hraðari uppbyggingu.
Samstarfsáætlun á sviði orkumála styður við framtíðarsýnina 2030
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, lagði áherslu á það á ráðherrafundinum að norrænt orkusamstarf væri mikilvægur þáttur í vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar að framtíðarsýninni 2030.
- Samstarf í orkumálum eykur viðnámsþrótt, sjálfbærni og samkeppnishæfni Norðurlanda og styrkir þann metnað að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030, segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Það snýst ekki lengur „aðeins“ um að berjast gegn hnattrænni hlýnun heldur einnig um að efla öryggi okkar og óhæði, og þar með frelsi okkar og lýðræðisleg gildi.
Norðurlönd eiga einstakt samfélag og vinna saman með markvissum hætti. Norrænu orkukerfin eru áfram sterk, viðnámsþolin og byggjast á hreinni orku. Kerfinu stendur hins vegar ógn af landfræðipólitískum aðstæðum. Við, norrænir orkumálaráðherrar, ræddum á fundi okkar í Helsinki 1. október 2025 bæði núverandi stöðu í orkumálum og þær áskoranir sem framundan eru.
Á tímum sem þessum, þegar stríð geisar í Evrópu, staða öryggimála er alvarleg og eðli bandalagsins yfir Atlantshafið hefur breyst, er orkuöryggi grundvallaratriði. Hér hefur norrænt samstarf sannað mikilvægi sitt og styrk. Forsendur okkar og áherslur eru mismunandi en aftur á móti er fjöldi áskorana og tækifæra sem er okkur sameiginlegur og þar höfum við sameinast um sameiginleg markmið.
Staðgengill Orkumálaráðherra Úkraínu, Roman Andarak, tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað og deildi reynslu af því að halda uppi orkuöflun við afar krefjandi aðstæður. Orkumálaráðherrarnir þakka Roman Andarak fyrir að miðla reynslu sinni þrátt fyrir krefjandi aðstæður heima fyrir. Orkumálaráðherrarnir árétta góð tengsl Úkraínu og Norðurlanda og leggja áherslu á að viðhalda samstarfi og samskiptum bæði nú og við enduruppbyggingu úkraínska orkukerfisins.]
Með hliðsjón af fundinum með staðgengli orkumálaráðherra Úkraínu sem og málstofu háttsettra embættismanna um orkuöryggi sem finnska formennskan stóð fyrir í aðdraganda ráðherrafundarins, ræddu orkumálaráðherrarnir hvernig efla mætti og styðja áframhaldandi starf landanna við að bæta orkuöryggi í gegnum norrænt samstarf.
Norðurlönd eru í sterkri stöðu til að vera í fararbroddi á sviði orkuöryggis með hefð sinni fyrir samstarfi, tækniframförum og sameiginlegum gildum, auk vaxandi hlutdeildar sjálfframleiddrar orku sem eykur orkuöryggi og viðnámsþol og gerir að verkum að við erum síður háð jarðefnaeldsneyti frá löndum utan ESB/EES. Sama á við um þau svæði á norðurslóðum sem eru meira einangruð hvað orkumál varðar, en búa yfir möguleikum á sviði endurnýjanlegrar orku og eru þannig í góðri stöðu til að leggja sitt af mörkum til framleiðslu á til dæmis grænu eldsneyti. Með því að dýpka samstarfið sín á milli geta Norðurlönd byggt upp öruggari og sjálfbærari orkuframtíð sem gagnast samfélaginu og borgurum.
Samtímis þurfum við stöðugt að vera vakandi fyrir samkeppnishæfni Norðurlanda. Aðgangur að loftslagsvænni raforku á sanngjörnu verði hefur verið einn af styrkleikum norræns iðnaðar og þar gegnir virkur norrænn raforkumarkaður mikilvægu hlutverki. Við stöndum frammi fyrir frekari rafvæðingu, innleiðingu stórra gagnavera, vetnisframleiðslu o.s.frv. og allar spár benda til aukinnar eftirspurnar eftir rafmagni. Þetta krefst umtalsverðra fjárfestinga í flutningsnetinu og í nægjanlegri nýrri raforkuframleiðslu – þ.m.t. stjórnanlegri raforkuframleiðslu, geymslu og sveigjanleika í raforkunotkun sem ver virkni raforkukerfisins. Hraðinn og svæðisbundin samhæfing þarf að aukast, og tækifæri eru til að bæta umgjörðina með einföldun, samhæfingu og samræmingu.
Markmiðið er áframhaldandi öflugt orkusamstarf sem viðheldur og eflir viðnámsþrótt, sjálfbærni og samkeppnishæfni Norðurlanda og aðstoðar þannig löndin við að gera að veruleika þá framtíðarsýn að vera sjálfbærasta og samþættasta svæði heims og stuðlar um leið að hreinni og sjálfstæðari Evrópu sem ekki er háð rússnesku gasi.