Fylgist með COP30: Viðburðir í norræna skálanum

15.11.25 | Fréttir
cop30 forskerpanel

Johan Rockström og Alexandre Antonelli på scenen i den nordiske pavillon på COP30.

Ljósmyndari
Andy Sewell

Johan Rockström og Alexandre Antonelli á sviðinu í norræna skálanum á COP30.

Með einum smelli má nálgast umræðurnar í Belém í Brasilíu. Við erum búin að taka upp og birta nokkra viðburði í norræna skálanum á COP30 og fleiri eru væntanlegir á næstu dögum.

Á meðan COP30 stendur yfir í Belém stendur Norræna ráðherranefndin fyrir yfir 40 viðburðum þar sem farið er yfir stöðuna, lausnir og leiðina fram á við til móts við kolefnishlutlausa og sjálfbæra framtíð í samræmi við Parísarsamninginn. Valdir viðburðir eru birtir jafn óðum svo allir geti fylgst með umræðunum eftir því sem þeim vindur fram á fundinum.

Fimm viðburðir eru nú þegar tilbúnir og fleiri eru væntanlegir á næstu dögum.

Meðal hápunkta er samtal tveggja virtra vísindamanna, Johans Rockström, prófessors í jarðkerfisfræði, og Alexandre Antonelli, prófessors í líffræðilegri fjölbreytni, um sterk tengsl loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni. Þeir töluðu meðal annars um AMOC-hafstrauminn og nýjustu rannsóknir sem benda til þess að 1–10 prósent líkur séu á hruni hans. Einnig komu þeir inn á mikilvægt hlutverk matvælakerfa þegar kemur að því að takast á við bæði loftslagsvandann og vanda líffræðilegrar fjölbreytni.

Þátttakendur í umræðum um mat úr hafinu voru Andreas Bjelland Eriksen, loftslagsráðherra Noregs, Wellington Dias, ráðherra þróunarmála, félagsmála, fjölskyldumála og baráttunar gegn hungri í Brasilíu, og Sanda Ojiambo, varaframkvæmdastjóri UN Global Compact. Þau litu ásamt vísindamönnum nánar á matvæli úr hafinu sem ónýtta auðlind til þess að tryggja íbúum heims sjálfbærar og heilnæmar máltíðir.

Einnig er hægt að horfa á pallborðsumræður með vísindamönnum um lífhagkerfi sem loftslagslausn og hlusta á fulltrúa Samaráðsins, UNEP og Arctic Monitoring & Assessment Programme greina frá stöðu hins þríþætta vanda.

Hvað gerist í norræna skálanum?

Í norræna skálanum á COP30 koma saman norrænir og erlendir aðilar sem vilja styðja við loftslagsaðgerðir með samvinnu, nýsköpun og inngildingu.

  • Dagskrá: Yfir 40 viðburðir og pallborðsumræður.
  • Byggjum brýr: Á milli rannsókna, stjórnmála og framkvæmda. Ráðherrar, leiðtogar úr atvinnulífinu, fulltrúar ungs fólks, loftslagssendiherrar, borgarasamfélagið og samningafólk hittist og ræðir saman.