Efling vatnsrænna matvælakerfa fyrir heilsu hafs og manna
Upplýsingar
Hafið skiptir sköpum fyrir heilsu manna og jarðarinnar, loftslagið, fæðuöryggi, lífsviðurværi fólks og hagkerfi heimsins. Norrænu löndin; Danmörk, Finnland, Færeyjar, Grænland, Ísland, Noregur, Svíþjóð og Álandseyjar, gera sér grein fyrir því að vernda verður hafið, ekki aðeins sem auðugt náttúrulegt vistkerfi heldur einnig sem sjálfbæra matvælaauðlind. Með ábyrgri stjórnun höfum við tækifæri til þess að endurheimta sjávarvistkerfi, byggja fiskistofna upp að nýju og framleiða meira af sjálfbæru sjávarfangi.
Sjávarfang bæði fólksins og umhverfisins vegna
Hafið gegnir mikilvægu hlutverki við að fæða heimsbyggðina. Sjávarfang og vatnsræn matvæli eru næringarrík, hafa minna vistspor en margar gerðir matvæla sem framleidd eru á landi og geta stuðlað að heilnæmara mataræði. Hafið gæti gegnt mun stærra hlutverki í matvælaframleiðslu heimsins og góð fiskveiðistjórnun og ábyrgt lagareldi gæti átt þátt í að mæta vaxandi matvælaþörf heimsbyggðarinnar um leið og staðinn væri vörður um vistkerfi.
Aukið viðnám og sameiginleg velsæld
Heilbrigð höf stuðla að auknu fæðuöryggi og viðnámi gegn loftslagsbreytingum. Eftir því sem loftslagsbreytingar og önnur umhverfisáhrif færast í vöxt geta sjálfbær og vatnsræn matvælakerfi aukið stöðugleika og aðlögunarhæfni matvælakerfa við sjó og á heimsvísu.
Marghliða samstarf og miðlun þekkingar
Við leggjum áherslu á mikilvægi marghliða samstarfs þegar kemur að því að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í tengslum við hafið. Hnattræn vandamál kalla á hnattrænar lausnir og samstarf. Vísindalegt samstarf og miðlun þekkingar skiptir sköpum. Norrænu löndin munu áfram styðja af krafti við rannsóknir, nýsköpun og opið samtal allra hagsmunaaðila um sjálfbær og vatnsræn matvælakerfi jafnt svæðisbundið sem á heimsvísu.
Lýsing á skuldbindingum
- Við skuldbindum okkur til að efla marghliða samstarf um að vernda heilsu hafsins og tala fyrir vatnsrænum matvælum og sjávarfangi sem hornsteini sjálfbærni og velferðar mannkyns á heimsvísu.
Frestur: Desember 2027.
- Við skuldbindum okkur til að efla norrænar rannsóknir og nýsköpun á sviði hafvísinda, þ.m.t. fiskveiða, lagareldis, vatnsrænna matvælakerfa, sjávarvistfræði og annarra tengdra umhverfis- og loftslagsvísinda.
Frestur: Desember 2027.
- Við skuldbindum okkur til að efla norrænt og evrópskt samstarf um viðnámsþolin vatnsræn matvælakerfi, þ.m.t. hvað varðar loftslags- og umhverfisáhrif þeirra, og að koma í veg fyrir matvælasóun.
Frestur: Desember 2027.