Samstíga Norðurlönd
Norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum.
Saman erum við sterkari, bæði dags daglega og á krísutímum.
Þema þingsins í ár er „Samstíga Norðurlönd – norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum“. Þingmenn Norðurlandaráðs vinna að því gera Norðurlönd að stað þar sem er einfalt að búa og vinna þvert á landamæri og þar sem samstarfið eflir frið, lýðræði og traust.
Á þinginu koma saman 87 þjóðkjörnir þingmenn norrænu þjóðþinganna. Á opnunardaginn, 28. október, er fundur Norðurlandaráðs og norrænu forsætisráðherranna á dagskrá, auk erindis frá tignargesti ársins. Efni fundarins í ár er norræn samheldni og notagildi í daglegu lífi Um kvöldið verða verðlaun Norðurlandaráðs afhent við hátíðlega athöfn.
Á dagskrá á miðvikudeginum er fyrirspurnatími samstarfsráðherranna auk umræðna um utanríkis- og varnarmál með viðkomandi ráðherrum.
Á lokadegi þingsins greiðir Norðurlandaráð atkvæði um það hvaða tilmæli verða send norrænu ríkisstjórnunum á sviðum á borð við velferð, loftslagsmál og græn umskipti.
Allar umræður og verðlaunaafhendingin verða í beinni útsendingu á þessari síðu: