Heilbrigðisþjónusta á Álandseyjum

Á þessari síðu eru gefnar upplýsingar heilbrigðisþjónustu við basta búsetu eða tímabundna dvöl á Álandseyjum. Síðan inniheldur einnig upplýsingar um opinbera heilbrigðisþjónustu, sjúkratryggingakort, endurgreiðslu sjúkrakostnaðar og hvert skal leita með athugasemdir um heilbrigðisþjónustu.

Álandseyjar hafa löggjafarvald á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu. Til að fá fullan aðgang að opinberri heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum þarf að hafa lögheimili í sveitarfélagi á Álandseyjum. Auk hinnar opinberu heilbrigðisþjónustu er einnig að finna heilbrigðisþjónustu á vegum einkaaðila. Fyrir einstaklinga sem starfa hjá álenskum vinnuveitanda er algengt að heilbrigðisþjónusta fyrirtækisins beri ábyrgð á hluta heilbrigðisþjónustunnar, þar á meðal þeirrar sem tengist vinnu. 

Opinber heilbrigðisþjónusta

Ålands hälso- och sjukvård (ÅHS) ber ábyrgð á opinberri heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum og er mest af starfsemi hennar í Mariehamn. ÅHS býður meðal annars upp á bráðamóttöku, mæðra- og barnaráðgjöf, heilbrigðisþjónustu fyrir námsmenn, heimahjúkrun, sérhæfða heilbrigðisþjónustu og tannlæknaþjónustu. Einnig er boðið upp á opinbera heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og í skerjagarðinum. Auk heilsugæslustöðvarinnar í sveitarfélaginu Finnström er einnig að finna heilsugæslustöðvar í öðrum sveitarfélögum á Álandseyjum. Nánari upplýsingar fást á vefsíðu ÅHS.

Heilbrigðisþjónusta við tímabundna dvöl

Allir eiga rétt á bráðri þjónustu hjá hinni opinberu heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum, óháð ríkisfangi eða búsetulandi. Finna má nánari upplýsingar um heilbrigðisþjónustu fyrir ferðamenn og gesti á vef ÅHS og undir fyrirsögnunum hér að neðan.

Heimasveitarfélag í Finnlandi

Einstaklingar sem búa á finnska meginlandinu geta ekki valið sér heilsugæslustöð á Álandseyjum og þeir sem hafa fasta búsetu á Álandseyjum geta ekki valið þá þjónustu sem er í boði innan opinberu heilbrigðisþjónustunnar í Finnlandi. Finna má nánari upplýsingar um heilsugæslustöðvar á vefnum Suomi.fi.

Einstaklingar sem hafa lögheimili á meginlandi Finnlands eiga rétt á bráðri heilbrigðisþjónustu og eftirfylgni á Álandseyjum. Einstaklingar þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum eða FPA-korti. Hefðbundin komugjöld eru greidd fyrir þjónustuna.

Fyrir fyrirhugaða heilbrigðisþjónustu er krafist vottorðs eða greiðsluskuldbindingar frá viðkomandi velferðarsviði sem staðfestir að kostnaðurinn vegna meðferðarinnar verði greiddur. Útvega þarf vottorðið áður en meðferð hefst. Að því loknu metur ÅHS hvort hægt sé að veita meðferðina.

Búseta á Norðurlöndum

Einstaklingar sem eru búsettir í öðru norrænu landi eiga rétt á bráðri heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum. Starfsfólk ÅHS metur þörfina fyrir heilbrigðisþjónustu. Hefðbundin komugjöld eru greidd en framvísa þarf gildum persónuskilríkjum og gefa upp heimilisfang. Ef ekki er hægt að framvísa persónuskilríkjum eða gefa upp heimilisfang þarf að greiða fullan kostnað fyrir þjónustuna. Kostnaðurinn getur í vissum tilfellum fengist endurgreiddur eftir á frá sjúkratryggingastofnun í heimalandinu ef heilbrigðisþjónustan telst hafa verið nauðsynleg.

Búseta utan Norðurlanda

Allir eiga rétt á bráðri þjónustu hjá hinni opinberu heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum, óháð ríkisfangi eða búsetulandi. Kostnaður heilbrigðisþjónustunnar getur verið mismunandi eftir því frá hvaða landi einstaklingurinn kemur og hvaða rétt hann á á þjónustu. Nánari upplýsingar um gesti frá ESB - og EES-löndum, Bretlandi og öðrum samningslöndum er að finna á vefsvæði ÅHS.

Niðurgreiðsla lyfja og greiðsluþak

Einstaklingar sem hafa fasta búsetu á Álandseyjum geta fengið niðurgreiðslu FPA fyrir lyfjakostnaði, klínískum fæðubótarefnum og smyrslum sem fengin eru með lyfseðli til að meðhöndla sjúkdóm. FPA kann einnig að niðurgreiða lyfjakostnað ef þú átt rétt á heilbrigðisþjónustu í Finnlandi samkvæmt ESB-lögum eða alþjóðasamningi.

Greiðsluþak er á kostnaði fyrir heilbrigðisþjónustu á einu almanaksári. Þegar þakinu er náð þarf ekki að greiða meiri kostnað sem fellur undir greiðsluþakið það sem eftir er af árinu. Sjúklingar bera sjálfir ábyrgð á að halda utan um eigin kostnað en ÅHS getur veitt aðstoð við eftirfylgni.

Á síðunni „Lyf og niðurgreiðsla lyfja á Álandseyjum“ má finna nánari upplýsingar um lyf, niðurgreiðslur lyfja og greiðsluþak. 

Sjúkratryggingakort

Einstaklingar sem eru búsettur í Finnlandi og á Álandseyjum geta bæði fengið FPA-kortið og evrópska sjúkratryggingakortið. Kortin sýna fram á rétt til heilbrigðisþjónustu og sjúkratrygginga í Finnlandi, á Álandseyjum og erlendis.

FPA-kortið

FPA-kortið sýnir fram á að einstaklingur eigi aðild að finnskum sjúkratryggingum og eigi rétt á niðurgreiðslum FPA. Kortið er fyrst og fremst notað til að fá niðurgreiðslu í apótekum og heilbrigðisstofnunum, en í apótekum nægir einnig að framvísa persónuskilríkjum. Einstaklingar sem flytja til Finnlands og Álandseyja geta sótt um FPA-kort þegar þeir fá aðild að finnskum sjúkratryggingum. Sjá nánar á vefsíðu FPA um FPA-kortið.

Kortið gildir ekki sem persónuskilríki og gefur ekki rétt til opinberrar heilbrigðisþjónustu. Réttur til opinberrar heilbrigðisþjónustu byggist á því hvar einstaklingur hefur lögheimili. 

Evrópska sjúkratryggingakortið

Evrópska sjúkratryggingakortið sýnir fram á að einstaklingur eigi rétt á læknisfræðilega nauðsynlegri umönnun við tímabundna dvöl í öðru ESB- eða EES-landi, Sviss eða Bretlandi með sömu skilyrðum og fyrir sama verð og íbúar viðkomandi lands. Á Norðurlöndum þarf nægir yfirleitt að framvísa gildum persónuskilríkjum til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Þjónusta er veitt af hinni opinberu heilbrigðisþjónustu eða á einkareknum læknastofum sem hafa gert samning við sjúkratryggingayfirvöld í landinu.

Kortið er ókeypis og einstaklingar sem eiga aðild að finnskum sjúkratryggingum eða eru með sjúkrakostnað sem Finnland ber ábyrgð á geta sótt um það hjá FPA. Kortið gildir í allt að fimm ár og endurnýjast sjálfkrafa ef Finnland ber áfram ábyrgð á sjúkrakostnaðinum. Sjá nánar á vefsíðu FPA.

Athugasemdir og kvartanir

Hægt er að leita til stofnunar umboðsmanns og umboðsmanns sjúklinga til að fá aðstoð og ráðgjöf vegna óánægju í tengslum við heilbrigðisþjónustuna. Þeir geta meðal annars aðstoðað við að útbúa kvartanir og tilkynningar til Sjúkratryggingamiðstöðvar (Patientförsäkringscentralen). Einnig er hægt að beina kvörtunum, tilkynningum og ábendingum beint til ÅHS, sjá nánar á vefsíðunni „Réttindi sjúklinga“.

ÅMHM er eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustunnar og tekur einnig við kvörtunum vegna mistaka eða annmarka. Sjá nánar á vefsíðu ÅMHM. 

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um heilbrigðisþjónustu í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Hafa samband við yfirvöld

Ef þú hefur spurningar um heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum geturðu haft samband við heilbrigðisyfirvöld

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.