Leiðbeiningar: upplýsingar fyrir aldraða sem vilja flytja til Noregs

Ljósmyndari
Photo by Matt Bennett on Unsplash
Það geta verið mikil umskipti fyrir ellilífeyrisþega að flytja til Noregs en ýmis úrræði og réttindi geta einfaldað hversdagslífið. Í þessum leiðbeiningum er gefið yfirlit yfir það helsta sem ellilífeyrisþegar sem íhuga flutning til Noregs ættu að hafa í huga.

Skráning lögheimilis í Noregi

Ef þú hyggst dveljast í Noregi lengur en í sex mánuði þarftu að skrá lögheimili þitt þar í landi. Þú þarft að athuga hjá þjóðskrá í þínu landi hvort þú þurfir að tilkynna þeim um flutning úr landi.

Í leiðbeiningum Info Norden um flutning til Noregs er að finna upplýsingar um hvernig þú tilkynnir um flutning, skráir lögheimili þitt í Noregi og færð norska kennitölu.

Lífeyrir við búsetu í Noregi

Lífeyrisaldur í Noregi er 67 ár. Þú átt rétt á norskum ellilífeyri jafnvel þótt þú hafir aðeins búið eða starfað í Noregi í skamman tíma. Það hve hár lífeyririnn er ræðst meðal annars af tryggingartímabilinu.

Hægt er að þiggja lífeyri frá öðrum löndum þegar búið er í Noregi. Ef þú hyggst flytja til Noregs og tekur við lífeyri frá öðru landi eða átt rétt á ellilífeyri frá öðru landi skaltu hafa samband við lífeyrisstofnun þína til að athuga hvað þú þarft að gera ef þú flytur.

Skattur af lífeyri í Noregi

Lífeyrisþegar í Noregi greiða tekjuskatt. Skattyfirvöld (Skatteetaten) geta gefið nánari upplýsingar um hvaða reglur gilda í þínu tilfelli og ef þú færð lífeyri frá öðru norrænu landi. Noregur hefur gert tvísköttunarsamninga við mörg lönd til að koma í veg fyrir tvöfalda skattbyrði.

Á norrænu skattaupplýsingasíðunni Nordisk eTax er einnig að finna upplýsingar um skatt á lífeyri frá norrænu landi við búsetu í Noregi.

Vinna lífeyrisþega í Noregi

Þú getur unnið í Noregi jafnvel þó að þú sért lífeyrisþegi. Kynntu þér reglur um hve mikið má vinna hjá lífeyrisstofnun þinni.

Réttur til heilbrigðisþjónustu í Noregi

Ef þú býrð í Noregi áttu rétt á opinberri heilbrigðisþjónustu. Það þýðir að þú hefur aðgang að heimilislækni, þjónustu sérfræðilækna og meðhöndlun á sjúkrahúsi. Að öllu jöfnu þarf að greiða hlut sjúklings af heilbrigðisþjónustu, en fríkortakerfi setur greiðsluþak á árleg útgjöld.

Húsnæði og húsnæðisstyrkur í Noregi

Ýmis búsetuúrræði eru í boði fyrir ellilífeyrisþega, þar á meðal húsnæði fyrir aldraða og húsnæði með umönnun. Fólk með lágar tekjur getur sótt um húsnæðisstyrk hjá Husbanken eða sveitarfélaginu sem það býr í. Húsnæðisstyrkurinn stendur straum af hluta af húsnæðiskostnaði.

Heimilishjálp (heimilisþjónusta og hjálpartæki) í Noregi

Lífeyrisþegar sem þurfa á aðstoð að halda í hversdagslífinu geta sótt um heimilisþjónustu frá sveitarfélagi sínu. Þjónustan getur falið í sér hjúkrun, þrif, umönnun og afhendingu matar. Einnig er hægt að fá aðlagað húsnæði með útláni hjálpartækja á borð við göngugrindur og sérhönnuð húsgögn. Tæknileg hjálpartæki á borð við öryggisviðvörun og lyftur kunna einnig að vera í boði. Hafðu samband við sveitarfélag þitt til að fá nánari upplýsingar um heimilisaðstoð. 

Ef þú nýtir þér hjálpartæki í öðru norrænu landi og hyggst flytja til Noregs skaltu kynna þér hvaða reglur gilda í þínu landi um flutning hjálpartækjanna til Noregs.

Tilboð fyrir aldraða í Noregi

Mörg sveitarfélög bjóða öldruðum upp á tilboð á borð við félagsstarf, æfingahópa og námskeið. Ýmis samtök aldraðra skipuleggja einnig viðburði á borð við ferðir og tómstundasmiðjur. Oft geta sveitarfélögin og samtök aldraðra geta einnig veitt upplýsingar um arf, erfðaskrár og önnur lagaleg atriði.

Hafðu samband við sveitarfélag þitt til að fá nánari upplýsingar hvaða tilboð eru í boði á þínum stað. 

Afsláttur fyrir aldraða í Noregi

67 ára og eldri geta fengið afslátt í almenningssamgöngum, þ.e. strætisvögnum, lestum og ferjum. Einstakar menningarstofnanir og fyrirtæki, svo sem söfn og leikhús, bjóða öldruðum einnig upp á afslætti.

Sumir bankar bjóða öldruðum upp á sérstaka þjónustu með lægri gjöldum og einfaldari bankalausnum.

Upplýsingar um andlát, arf og erfðaskrár í Noregi

Finna má upplýsingar í tengslum við andlát og arf í Noregi á norge.no.

Oft geta sveitarfélögin og samtök aldraðra geta einnig veitt upplýsingar um arf, erfðaskrár og önnur lagaleg atriði.

Spyrja Info Norden

Þú getur fyllt út fyrirspurnareyðublað okkar ef þú hefur spurningar eða hefur lent í hindrunum í öðru norrænu landi.

Ath.! Ef spurningin varðar meðhöndlun tiltekins máls, umsóknar eða persónulegra aðstæðna skaltu hafa samband við viðeigandi yfirvöld.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.