Stuðningur og hjálpartæki fyrir fólk með fötlun á Álandseyjum

Á þessari síðu eru gefnar upplýsingar um þjónustu, stuðning og hjálpartæki sem eru í boði fyrir fólk með fötlun á Álandseyjum. Einnig eru gefnar upplýsingar um hver eiga rétt á stuðningi og hjálpartækjum og hvert skal leita ef einstaklingur upplifir mismunun í félagsþjónustunni.

Á Álandseyjum gilda sérstök lög og reglur um heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu, en þó með vissum undantekningum. Fólk með fötlun getur fengið stuðning og hjálp í daglegu lífi frá félagsþjónustu sveitarfélaganna (Kommunernas socialtjänst, KST), sem ber ábyrgð á félagsþjónustu á Álandseyjum. Heilbrigðisþjónusta Álandseyja (ÅHS) og FPA bjóða einnig upp á stuðning, bætur og hjálpartæki.

Þjónusta við fólk með fötlun

Þjónusta er veitt fólki sem vegna fötlunar eða langvarandi sjúkdóms þarf á ýmiss konar stuðningi að halda til að viðhalda eða efla færni sína og getu til að taka virkan þátt í samfélaginu á jafnréttisgrundvelli.

KST metur þörf fyrir stuðning og hvaða úrræði eru nauðsynleg miðað við fötlunina samkvæmt innsendri umsókn með tilliti til þess hvernig auðvelda megi virkni í daglegu lífi og hvaða þjónusta er nauðsynleg og fullnægjandi. Nánari upplýsingar um þjónustu KST er að finna á vefsíðunni „Þjónusta við fólk með fötlun“ og undir fyrirsögnunum hér að neðan.

Vinna

Dagstarfsemi, starfsemi í atvinnuskyni og atvinnustarfsemi stuðla að þátttöku og tækifærum til atvinnuþátttöku fyrir fólk með fötlun. Þessi mismunandi form eru sniðin af þörfum þeirra sem þurfa aðstoð við að komast inn á vinnumarkaðinn eða eru ófær um að vinna. Þetta starf er skipulagt á sviði sérhæfðrar umönnunar og þjónustu við fólk með fötlun.

Nánari upplýsingar um tegundir atvinnuúrræða er að finna á vefsíðum KST um atvinnustarfsemi, dagstarfsemi og hagnýta vinnu (fixtjänst).

Persónuleg aðstoð

Einstaklingar með mikla fötlun geta fengið persónulega aðstoð.Persónuleg aðstoð felur í sér aðstoð við daglegar athafnir, störf og nám, frístundir og álíka aðstæður. Nánari upplýsingar um hvað felst í persónulegri aðstoð, persónulega aðstoð fyrir börn og umsóknir er að finna á vef KST.

Þjónustuíbúðir

KST býður upp á húsnæði fyrir 65 ára og yngri einstaklinga með líkamlega og/eða andlega fötlun með þjónustu allan sólarhringinn í þjónustuíbúðunum Lagunen í sveitarfélaginu Jomala. Þar veitir starfsfólk aðstoð og stuðning og einnig er kostur á félagsskap í daglegu lífi. Nánari upplýsingar um þjónustuíbúðirnar Lagunen er að finna á vefsvæði KST.

Einnig er boðið upp á þjónustuíbúðir fyrir fólk með fötlun sem fellur undir sérstaka þjónustu, sjá nánar á síðunni „Húsnæði“ á vef KST. 

Ferðaþjónusta og stuðningur við hreyfanleika

KST getur veitt styrki fyrir ferðaþjónustu fyrir einstaklinga með mikla fötlun og í sumum tilfellum einnig fyrir fylgdarmann viðkomandi. Með ferðaþjónustu er átt við ferðir sem tilheyra daglegu lífi, til dæmis ferðir til vinnu, skóla, í tómstundir o.s.frv. Ekki er heimilt að nota ferðaþjónustu fyrir ferðakostnað sem FPA endurgreiðir.

KST getur einnig veitt þjónustu sem styður við hreyfanleika. Þjónustan er fyrst og fremst veitt þeim sem hafa skerta hreyfigetu til að viðkomandi geti sinnt daglegum erindum.

Nánari upplýsingar um skilyrði, umsóknir og hver eiga rétt á ferðaþjónustu og þjónustu sem styður við hreyfanleika er að finna á vef KST.

Sækja um þjónustu við fólk með fötlun

Sótt er um þjónustu við fólk með fötlun hjá KST með pappírseyðublaði eða á netinu. Umsókninni skal fylgja læknisvottorð og álit sérfræðings. Sérfræðingurinn getur til dæmis verið iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, talmeinafræðingur o.s.frv. Ef umsóknin varðar vinnu við breytingar, verkfæri og búnað þarf kostnaðaráætlun að fylgja með. Nánari upplýsingar um umsóknir fást á vef KST.

Hjálpartæki og endurgreiðslur

Hjálpartæki sem auðvelda hversdagslífið geta til dæmis verið hjólastólar, klósettsetuupphækkanir og hjálpartæki fyrir samskipti. Hjálpartæki fást frá ÅHS, FPA eða KST, allt eftir aðstæðum. Sum hjálpartæki eru endurgreidd innan ramma læknisfræðilegrar endurhæfingar og eru almennt ókeypis. Sjá nánar á vefsvæði ÅHS, Hjälpmedelscentralen. 

Hjálpartæki fyrir frístundastarf og hjálpartæki sem eru fest á heimili, til dæmis handföng og rampar, geta verið greidd af KST eða landsstjórn Álandseyja. Einstaklingar með mikla fötlun geta auk þess fengið endurgreiðslu fyrir breytingar sem gera þarf á húsnæði til að þeir geti séð um sig sjálfir í daglegu lífi, til dæmis með aðlögun á baðherbergi. KST endurgreiðir einnig aukakostnað vegna klæða, sérfæðis og sérstakra næringarefna sem notuð eru reglulega til langs tíma. Auk þess býður öldrunarþjónustan upp á vissa aðlögun húsnæðis fyrir 65 ára og eldri.

Einnig er hægt að sækja um styrk til að eignast bíl að undangengnu einstaklingsbundnu mati á þörfum. Einstaklingar sem ekki keyra sjálfir en þurfa á bíl að halda, til dæmis vegna vinnuverða, geta einnig fengið styrk. Kostnaður vegna nauðsynlegra aðlagana ökutækja er almennt einnig endurgreiddur af KST.

Hafðu alltaf samband við þjónustu KST við fólk með fötlun áður en vinna við aðlögun húsnæðis hefst eða ef óvissa ríkir um hvaða viðbótarkostnaður fæst endurgreiddur. Nánari upplýsingar fást á vefsíðu KST um aðlögun húsnæðis og verkfæri.

Félagslegar bætur og styrkir

Upplýsingar um almannatryggingar, svo sem endurhæfingu, félagslega aðstoð og sjúkradagpeninga, er að finna á síðum Info Norden um heilsu og almannatryggingar. Undir fyrirsögnunum hér að neðan eru gefnar nánari upplýsingar um félagslegar bætur og styrki í tengslum við fötlun.

Stuðningur fyrir umönnun aðstandanda

Umönnun aðstandanda felur í sér að einstaklingur með fötlun fær umönnun frá ættingja eða öðrum nákomnum einstaklingi á heimili sínu. Til að umönnun aðstandanda sé samþykkt þarf hún að vera aðalform umönnunar einstaklingsins, með möguleika á öðrum stuðningsúrræðum. Aðstandandinn sem veitir umönnun ber ábyrgð á umönnuninni og þarf hún að vera umfangsmeiri og meira krefjandi en sú umönnun sem almennt er veitt í samböndum para og fjölskyldum. Sjá nánar á vef KST.

Endurgreiðsla ferðakostnaðar

Hægt er að fá ferðakostnað endurgreiddan frá FPA ef ferðast er til eða frá opinberrar eða einkarekinnar sjúkrastofnunar og ástæða ferðarinnar er t.d. sjúkdómur eða endurhæfing. Endurgreiðsla er almennt aðeins samþykkt fyrir ferðir til næsta læknis, á skoðunar- eða heilsugæslustöð og stöðvarinnar sem opinbera heilsugæslan (ÅHS) keypti þjónustuna frá. Þetta á einnig við ferðir til Svíþjóðar.

Ef sjúklingur þarf á fylgdarmanni að halda í ferðinni er einnig hæft að fá ferðakostnað hans endurgreiddan. Ferðakostnaður er endurgreiddur ef heilbrigðisstarfsfólk ákvarðar að þörf sé á fylgdarmanni vegna sjúkdóms sjúklingsins eða að nauðsynlegt sé að fjölskyldumeðlimur sé á staðnum við meðferð.

Örorkubætur og umönnunarbætur

Örorkubætur fyrir yngri en 18 ára eru ætlaðar til að styðja við umönnun sex mánaða og eldri barna á heimili sem vegna sjúkdóms eða fötlunar hafa meiri þörf fyrir umönnun og endurhæfingu en flest önnur börn á sama aldri. Örorkubætur fyrir 18 ára og eldri eru fyrir einstaklinga sem hafa haft skerta starfsgetu í a.m.k. eitt ár vegna sjúkdóms eða fötlunar og sem ekki fá sjúkralífeyri eða ellilífeyri.

Umönnunarbætur fyrir lífeyrisþega eru ætlaðar fólki sem vegna sjúkdóms eða fötlunar hefur haft skerta starfsgetu í a.m.k. eitt ár. Þú getur fengið umönnunarbætur ef þú færð ellilífeyri, grunnlífeyri eða sjúkralífeyri eða aðrar bætur vegna óvinnufærni.

Örorkubætur og umönnunarbætur eru skattfrjálsar bætur sem sótt er um hjá FPA. Lesa má nánar um bæturnar á síðunni „Fötlun“.

Greiðslur vegna sérstakrar umönnunar

Greiðslur vegna sérstakrar umönnunar eru bætur vegna tekjutaps sem greiddar eru í þeim aðstæðum þegar foreldrar eða forráðamenn geta ekki stundað vinnu þar sem þeir þurfa að taka þátt í umönnun eða endurhæfingu barns yngra en 16 ára sem er með sjúkdóm eða fötlun. Lesa má nánar um sérstakar greiðslur vegna sérstakrar umönnunar á vef FPA.

Annar stuðningur og hjálpartæki

Upplýsingar um annan stuðning, þjónustu og hjálpartæki sem í boði eru fyrir fólk með fötlun á Álandseyjum eru gefnar undir fyrirsögnunum hér að neðan.

Heimaþjónusta

KST getur að undangegnu mati á þörfum boðið upp á heimaþjónustu fyrir einstaklinga sem vegna sjúkdóms, slyss eða fötlunar þurfa hjálp við að sinna verkefnum í tengslum við heimili, umönnun, uppeldi barna, daglegum erindum o.s.frv. Sjá nánar á vefsíðum KST.

Félagsaðstoð

Markmiðið með félagsaðstoð (boendestöd) er að bæta getu einstaklings til að lifa sem sjálfstæðustu lífi. Félagsaðstoð frá KST getur falið í sér leiðsögn við dagleg verkefni, svo sem að þrífa, elda og samskipti við stofnanir. Aðstoðin er ókeypis fyrir einstaklinga yngri en 65 ára og er veitt að undangengnu þarfamati. Nánari upplýsingar um félagsaðstoð er að finna á vef KST.

Stuðningsfulltrúi og stuðningsfjölskylda

Ef aðstoð frá eigin tengslaneti nægir ekki getur KST að undangengnu mati á þörfum veitt stuðningsfulltrúa eða stuðningsfjölskyldu. Stuðningurinn getur til dæmis falið í sér samskipti við fullorðna fyrirmynd, þjálfun í félagslegum aðstæðum eða að létta á fyrir fjölskylduna. Lesa má nánar um þetta á vef KST, þar sem einnig er hægt að skrá áhuga á að veita öðrum stuðning.

Bílastæðaleyfi fyrir einstaklinga með hreyfihömlun

Lögreglan á Álandseyjum gefur út bílastæðaleyfi fyrir fólk með hreyfihömlun. Sótt er um bílastæðaleyfi á lögreglustöðinni í Maríuhöfn. Bílastæðaleyfi er veitt gegn framvísun læknisvottorðs sem sýnir að örorkustigið uppfylli skilyrði um leyfi. Nánari upplýsingar fást á vefsíðu lögreglunnar um vegabréf, persónuskilríki, ökuskírteini og önnur leyfi.

Afhending pósts

Einstaklingar með hreyfihömlun geta fengið póst afhentan heim að dyrum án endurgjalds ef mælt er með því á læknisvottorði. Nánari upplýsingar fást hjá Åland Post.

Túlkaþjónusta

FPA getur veitt túlkaþjónustu á staðnum eða úr fjarlægð fyrir ýmsar aðstæður í hversdagslífinu vegna sjón- og heyrnarskerðingar eða tal- og málhömlunar. Hægt er að fá túlkun á táknmáli, sem táknmál með tali, rittúlkun og með samskiptaaðferðum fyrir einstaklinga með tal- og málhömlun.Nánari upplýsingar fást á vef FPA um túlkaþjónustu fyrir fólk með fötlun.

Skattar og fötlun

Einstaklingar með fötlun sem eru búsettir á Álandseyjum geta átt rétt á vissum skattafrádrætti. Þar er meðal annars um að ræða frádrátt á skatti sveitarfélaga, möguleika á endurgreiðslu bifreiðagjalds (bilskatt) við kaup eða innflutning bíls og undanþágu frá grunnskatti ökutækjaskatts (fordonsskatt)

Sjá nánar undir fyrirsögnunum hér að neðan og nánar um skatta á síðu Info Norden, „Skattar á Álandseyjum“.

Frádráttur vegna fötlunar

Einstaklingar sem hafa lögheimili á Álandseyjum eiga rétt á frádrætti vegna fötlunar fyrir útsvar sveitarfélaga þrátt fyrir að slíkur frádráttur sé ekki lengur leyfður fyrir einstaklinga sem búa á finnska meginlandinu. Þessi frádráttur er leyfður einstaklingum með a.m.k. 30% örorku vegna sjúkdóms, fötlunar eða líkamstjóns. Frádrátturinn er að hámarki 440 evrur. Nánari upplýsingar um frádrátt vegna fötlunar á vef skattyfirvalda um skattafrádrátt á Álandseyjum.

Endurgreiðsla bifreiðagjalds vegna skaða

Hægt er að sækja um endurgreiðslu bifreiðagjalds vegna skaða þegar einstaklingur með hreyfihömlun, sjónskerðingu eða aðra fötlun sem veldur varanlegri örorku er eigandi bíls sem er skráður í fyrsta sinn. Endurgreiðslan gildir um nýja bíla og bíla sem fluttir eru inn til Álandseyja frá öðrum löndum. Það hve stór endurgreiðslan er fer eftir aðstæðum og endurgreiðsla er aðeins veitt einu sinni. Nánari upplýsingar um endurgreiðslu bifreiðagjalds vegna skaða er að finna á vef skattyfirvalda.

Undanþága frá grunnskatti ökutækjaskatts

Undanþága frá grunnskatti ökutækjaskatts er veitt einstaklingum sem eiga bíl eða nota bíl sem er með gilt bílastæðaleyfi vegna hreyfihömlunar sem gefið er út af lögreglunni á Álandseyjum. Einstaklingar sem nota bíl til að flytja einstakling með hreyfihömlun og fá bifreiðagjald endurgreitt vegna sjúkdóms, skaða eða fötlunar sinnar eða fjölskyldumeðlims geta einnig fengið undanþágu frá grunnskatti ökutækjaskatts.

Undanþága frá skatti er aðeins veitt fyrir eitt ökutæki fyrir hvern einstakling með fötlun. Ef bílastæðaleyfi rennur út, eða við skipti á bíl, þar að senda inn nýja umsókn um undanþágu frá skatti. Ef ökutækið sem var undanþegið skatti er selt ber kaupandinn ábyrgð á ökutækjaskatti frá og með deginum eftir kaupin.

Nánari upplýsingar og eyðublöð um undanþágu frá grunnskatti ökutækjaskatts vegna fötlunar er að finna á vef svæðisskrifstofu Álandseyja.

Réttur á stuðningi og hjálpartækjum

Einstaklingar þurfa að hafa lögheimili í sveitarfélagi á Álandseyjum til að fá stuðning og hjálpartæki. Við tímabundna dvöl hafa einstaklingar aðeins rétt á nauðsynlegri þjónustu. Nánari upplýsingar er að finna á síðu Info Norden, „Réttur til heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum“.

Norræni sáttmálinn um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu gildir um norræna ríkisborgara og aðra einstaklinga sem hafa löglega búsetu í norrænu landi. Sáttmálinn kveður á um flutning einstaklinga sem þurfa á langvarandi umönnun eða meðhöndlun að halda milli norrænna landa. Viðkomandi yfirvöld þurfa samkvæmt honum að vinna saman í þágu skjólstæðinga og samræma aðgerðir til að flutningurinn milli landanna verði eins snurðulaus og mögulegt er. Stuðningur fellur að jafnaði niður við flutning til annars norræns lands. Hafðu samband við bæði núverandi yfirvöld og yfirvöld í landinu sem flutt er til áður en flutningurinn fer fram til að kanna hvað á við í þínum aðstæðum.

Óánægja og kvartanir

Ef þú upplifir mismunun eða óánægju með félagsþjónustuna getur þú leitað til umboðsmannsins á Álandseyjum eða Funktionsrätt Åland til að fá aðstoð og ráðgjöf. Umboðsmenn eru óháðir sveitarfélögum, yfirvöldum og þjónustuveitendum og geta aðstoðað við að útbúa kvartanir og tilkynningar. Einnig er hægt að beina kvörtunum, tilkynningum og ábendingum beint til KST eða ÅHS.

Einnig er hægt að leggja fram stjórnsýslukæru til umhverfis- og heilsuverndarstofnunar Álandseyja (ÅMHM). Slík kæra getur varðað annmarka og óreglu í skipulagi, framkvæmd og eftirfylgni félagsþjónustu. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðum viðkomandi stofnana.

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um hjálpartæki og þjónustu við einstaklinga með fötlun í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.