Alexander Winge kjörinn forseti Norðurlandaráðs ungmenna 2025
„Norðurlandaráð æskunnar verður sjálfstæð stofnun 2025 og það þýðir að það er mikilvægt ár fram undan þar sem við þurfum að koma upp traustu skipulagi fyrir stofnunina til frambúðar. Um leið ætlum við að efla pólitískt vægi okkar og halda áfram að vera öflugur málsvari ungs fólks á Norðurlöndum í heild sinni,“ segir Winge.
Meginverkefni Norðurlandaráðs ungmenna er að hafa áhrif á störf Norðurlandaráðs. Skilaboð Winge til þingmanna Norðurlandaráðs eru eftirfarandi:
„Hafið kjark til að hlusta á okkur unga fólkið og taka þær ákvarðanir sem þarf. Það erum við sem munum lifa með afleiðingum þeirra til lengri tíma svo við getum ekki bara hugsað til skemmri tíma. Ég hlakka til góðs samstarfs á komandi ári.“
Winge tekur við embætti forseta í janúar 2025 en hyggst nýta næstu mánuði til þess að búa sig undir verkefnið.