Ert þú að vinna að verkefni um traust, sjálfbærni eða jafnrétti?

22.05.19 | Fréttir
thenordics.com
Photographer
thenordics.com
The Nordics leitar að verkefnum sem setja ný málefni á dagskrá og styrkja norræna ímynd á heimsvísu. Ímyndarverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar styrkir hugmyndir og samstarf sem draga fram sameiginleg norræn gildi svo sem traust, nýsköpun, sjálfbærni, hreinskilni og jafnrétti.

Nú er hægt að senda inn nýjar umsóknir um verkefnastyrki. Verkefnið þitt er líklegra til að hljóta styrk ef þú vinnur með öðrum aðilum sem gera hugmynd þína enn sterkari en ella. Þó er enn mikilvægara að þér takist að sannfæra okkur um hvernig þú hyggst búa til góða sögu sem mun ýta undir áhuga á Norðurlöndunum. Fjármagn til úthlutunar í þessari umsóknalotu er 2,5 milljónir danskra króna.

Búðu til góða norræna sögu

Kynningarverkefnið The Nordics snýr ímyndarvinnunni á hvolf. Í stað þess að sýna heiminum Norðurlöndin ætlum við að sýna Norðurlöndin í heiminum. Ef við leggjum það sem skilur okkur að til hliðar verður þessi sameiginlega sýn öllum til gagns og auðveldar samstarf milli sendiráða, skrifstofa ræðismanna og annarra hagsmunaaðila.

Ef þú lumar á hugmynd að rétta verkefninu getum við aðstoðað þig við að dreifa boðskapnum með því að fjármagna að hluta samskiptaherferð, almannatengslastarf eða gerð hlaðvarpsþátta, svo dæmi séu tekin, Við viljum síður greiða flugmiða eða gistingu, en ef þú getur rökstutt að það sé einmitt það sem þarf til að koma verkefni þínu á forsíðu Rolling Stone erum við opin fyrir því að skoða það.

Tvær leiðir til að sækja um styrk

Supportive co-operation: Verkefni þar sem leitast er við að setja ný viðmið og markaðssetja Norðurlönd og sameiginleg markmið okkar. Hámarksfjárhæð styrkjar er 250.000 danskar krónur. 

Creative talents: Verkefni sem veita nýja sýn á það hvernig á að markaðssetja Norðurlönd. Óskað er eftir frumlegum verkefnum þar sem áhersla er lögð á nýtt blóð og nýjar hugmyndir. Hámarksfjárhæð styrkjar er 50.000 danskar krónur.

Viðmið sem umsóknir þurfa að uppfylla:

  • Áhersla á norræn gildi og ígrunduð áherslusvið
  • Sterk norræn saga
  • Þverfaglegt samstarf/viðfangsefni
  • Önnur fjármögnun (á ekki við um „creative talents“)
  • Að minnsta kosti þrír samstarfsaðilar, þar af tveir frá mismunandi Norðurlöndum (á ekki við um „creative talents“)
  • Staðfestir samstarfsaðilar (á ekki við um „creative talents“)

Umsóknarfrestur rennur út 30. ágúst 2019.

Markmiðið er að skapa Norðurlöndum heildstæða ímynd sem deilir vægi sínu með umheiminum með því að sýna hvernig norræn hugsun hefur iðulega haft áhrif annars staðar og hvernig gildi okkar ganga þvert á landamæri, menningu og kynslóðir.

Tobias Grut, verkefnastjóri hjá The Nordics

Auglýsing eftir styrkjum er ein margra leiða sem notaðar eru til þess að fylgja eftir áætluninni um alþjóðlega kynningu á Norðurlöndum og mörkun stöðu þeirra. Stafrænum verkfærakassa án endurgjalds hefur verið hleypt af stokkunum til að auðvelda fólki enn frekar að fá innblástur og dreifa boðskapnum.

„Markmiðið er að skapa Norðurlöndum heildstæða ímynd sem deilir vægi sínu með umheiminum með því að sýna hvernig norræn hugsun hefur iðulega haft áhrif annars staðar og hvernig gildi okkar ganga þvert á landamæri, menningu og kynslóðir,“ segir Tobias Grut, verkefnastjóri Branding the Nordic Region.

Þetta er í sjötta sinn sem auglýst er eftir umsóknum. Frá árinu 2016 hafa 113 verkefni frá ýmsum heimshornum verið styrkt af The Nordics og orðið til þess að margar framsæknar hugmyndir hafa komið fyrir sjónir heimsins.

Fylgið The Nordics til að fá nýjustu fréttir og upplýsingar: