EXPO 2025: Bókmenntir styrkja lýðræðið og byggja brýr á milli Japans og Norðurlanda
Ida Heimann Larsen, skrifstofustjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, setti norræna bókmenntadaga á heimssýningunni EXPO 2025
„Þegar börn og ungmenni læra að lesa öðlast þau ekki aðeins getu til að efla færni sína og taka virkan þátt í lýðræðissamfélagi okkar heldur fá þau líka tækifæri til að stíga inn í heim ímyndunaraflsins, þar sem þau geta látið sig dreymt stóra drauma eða fengið nýja sýn á sig sjálf og líf sitt. Norrænar barna- og ungmennabókmenntir leggja metnað í að taka markhópinn og hugsanir hans alvarlega. Og þegar börn og ungmenni lesa bækur frá hinum norrænu löndunum víkka þau sjóndeildarhring sinn um leið og þau geta með eðlislægum hætti tengt við bókmenntirnar, því menning okkar á svo margt sameiginlegt. En bæði í Japan og á Norðurlöndum fer lestraráhugi minnkandi. Ef við ætlum að fá börn og ungmenni til að lesa meira verðum við að veita þeim hvatningu til þess með skemmtilegum lestrarupplifunum. Þess vegna ræðum við á EXPO 2025 í Osaka við japanskan áhorfendahóp um hvað þurfi til, og við erum stolt af því að sumir fremstu höfundar, myndhöfundar og sérfræðingar í barna- og ungmennabókmenntum á Norðurlöndum taki þátt í norræna skálanum,“ sagði Ida Heimann Larsen, skrifstofustjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Með þessum orðum skrifstofustjórans hófst tveggja daga dagskrá undir formerkjum bókmennta í norræna skálanum á EXPO 2025 í Osaka. Þar komu fjölskyldur, höfundar og útgefendur saman til að fræðast betur um norrænar bókmenntir, bæði barna-, ungmenna- og fullorðinsbókmenntir.
Skrifað fyrir börn – Á Norðurlöndum og í Japan
Í Japan, sem sjálft státar af heimsfrægri menningu og bókmenntum, er einnig mikill áhugi á Norðurlöndum. Því voru margir norrænir höfundar með á bókmenntadögunum í norræna skálanum á EXPO 2025. Markmiðið var að kynna verk þeirra á japönskum og alþjóðlegum mörkuðum. Hápunktur dagskrárinnar voru pallborðsumræðurnar: Skrifað fyrir börn á Norðurlöndum og í Japan með myndhöfundinum Jenny Lucander sem hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2020 og greindi frá hinum norræna stíl:
„Stíll norrænna myndabóka er þekktur fyrir djörf og framsækin viðfangsefni sem og listræna tjáningu,“ segir Jenny Lucander. „Stíllinn er nokkuð frábrugðinn þeim japanska en samt eru margir snertifletir milli myndhöfunda og rithöfunda á Norðurlöndum og í Japan,“ bætti hún við.
Japanski menningarsérfræðingurinn Yukiko Duke stýrði umræðunum og útskýrði að í Japan standi fólk almennt í þroskaferli þar sem leitað er að nýrri leið til að vera barn og ungur, frjálsari leið. Þar sækja margir innblástur einmitt í djarfari barna- og bókmenntir sem koma frá Norðurlöndum.
EXPO býr til tækifæri til samstarfs á milli Japans og Norðurlanda
Norræna ráðherranefndin leggur sitt af mörkum til barna- og ungmennamenningar með fjármögnun barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem meðal annars vekja athygli á höfundum og greininni. Auk þess skapar Norræna ráðherranefndin nú, sem samstarfsaðili í norræna skálanum, einnig tækifæri fyrir norræna höfunda til að mæta japönskum og alþjóðlegum áhorfendahópi.
„Fyrir hvern einstakan höfund getur þessi viðburður opnað dyr að nýjum markaði. Það er gott fyrir höfundinn og það er gott fyrir norrænu löndin og samkeppnishæfni þeirra,“ sagði Ida Heimann Larsen, skrifstofustjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Jafnframt benti hún á annað jákvætt sjónarhorn frá bókmenntadögunum, þ.e. að þegar lönd og svæði kynnast menningu hvers annars stuðlar það að skilningi trausti og vilja til að vinna saman sem aftur stuðlar að því að efla öryggi og viðnámsþrótt á Norðurlöndum.