EXPO 2025: Norrænar heilbrigðislausnir í Japan
Sundhedsminister Sophie Løhde på EXPO 2025
Kaisa Juuso, heilbrigðisráðherra Finnlands setti norrænu heilbrigðis- og lífvísindadagana í norræna skálanum á EXPO 2025 í Osaka í Japan fyrir hönd Finnlands sem formennskulands. Í setningarræðu sinni undirstrikaði ráðherrann styrkleika norræns samstarfs í heilbrigðismálum undir merkjum One Health. One Health vísar til norræns samstarfs gegn sýklalyfjaónæmi með áherslu á þá ógn sem útbreiðsla sýklalyfjaónæmis á heimsvísu hefur í för með sér fyrir menn og dýr, ásamt viðurkenningu á tengslum heilsu manna, dýra og umhverfisins. Einnig lagði ráðherrann áherslu á það samkeppnisforskot sem það gefur norrænum fyrirtækjum að vera í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að gögnum, stafrænni tækni og nýsköpun á heilbrigðissviði.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna hafa sett sér það djarfa og metnaðarfulla markmið að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir árið 2030, og þessi framtíðarsýn liggur til grundvallar öllu starfi í norrænu samstarfi. Á heilbrigðissviðinu veitir hátt gæðastig norrænna gagna alþjóðlegt samkeppnisforskot og er mikilvæg auðlind fyrir bæði svæðið og heilbrigðiskerfið. Stafræn tækni og nýsköpunarlausnir eru grundvallarþættir í norrænu samstarfi á sviði heilbrigðis- og félagsmála eru.
Nordic Proof
Auk fjölmargra kynninga frá fyrirtækjum eins og Novo Nordisk frá Danmörku var verkefnið Nordic Proof kynnt fyrir gestum úr japanska nýsköpunarumhverfinu. Nordic Proof er samstarfsnet viðurkenndra heilbrigðisstofnana og prófunaraðila í heilbrigðiskerfum Norðurlanda, þar sem hægt er að sækja um gæðaprófanir á hugmyndum eða vörum í þróunarferlinu. Nordic Proof er fjármagnað af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni.
Sameiginlegar áskoranir Norðurlanda og Japan
Einnig var danski heilbrigðisráðherrann, Sofie Løhde, viðstödd og benti hún á að Japan og Norðurlönd ættu margt sameiginlegt, bæði hvað varðar áskoranir og gildi. Í bæði Japan og á Norðurlöndum er samfélagið að eldast, fleiri þjást af langvinnum sjúkdómum, færri börn fæðast og mikil eftirspurn er eftir heilbrigðisstarfsfólki. Japan og Norðurlönd eru einnig lík hvað gildi varðar, meðal annars þegar kemur að trausti og samstarfi sem einkennist af virðingu og gagnsæi.
Um Nordic Health and Life Science Days
Norræna ráðherranefndin stendur að baki Nordic Health and Life Science Days í nánu samstarfi við atvinnuþróunarsamtök þeirra Norðurlanda sem þátt tóku. Norræna ráðherranefndin er aðili að norræna skálanum á EXPO í þeim tilgangi að viðhalda og efla samkeppnishæfni Norðurlanda sem svæðis. Nordic Health and Life Science Days er þriðji sameiginlegi þemaviðburðurinn sem Norrænu ráðherranefndin stendur fyrir á EXPO 2025. Á næstu mánuðum verður boðið upp á norræna þemadaga, meðal annars um bókmenntir, jafnrétti, byggðamál og norðurslóðir.