Forsætisnefnd Norðurlandaráðs fjallar um svar norrænu ríkisstjórnanna varðandi endurnýjun Helsingforssamningsins

31.03.25 | Fréttir
Bryndís Haraldsdóttir, Nordic Council Theme Session 2025.

Bryndís Haraldsdóttir, Nordic Council Theme Session 2025.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Á fundi sínum í dag gerði forsætisnefnd Norðurlandaráðs grein fyrir vinnunni við endurnýjun Helsingforssamningsins. Árið 2024 samþykkti Norðurlandaráð að beina þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að uppfæra Helsingforssamninginn, sem oft er nefndur stjórnarskrá norræns samstarfs, með það fyrir augum að efla norrænt samstarf og færa það til nútímans.

Í febrúar svöruðu ríkisstjórna Norðurlanda ákvörðun og tilmælum Norðurlandaráðs með jákvæðum hætti. Þetta er mikilvægur áfangi í vinnunni við að tryggja að samningurinn endurspegli áskoranir og tækifæri nútímans í norrænu samstarfi. Ríkisstjórnirnar hafa tilkynnt að vinnan hefjist á því að varpa ljósi á grundvöllinn og forsendur fyrir uppfærslu. Anders Adlercreutz, samstarfsráðherra Norðurlanda í Finnlandi, tók þátt í fundi forsætisnefndarinnar.  „Það er kominn tími til að tilnefna sérfræðing sem mun ásamt teymi sínu vinna lagalega úttekt fyrir lok þessa árs,“ sagði Anders. „Þeirri vinnu á að ljúka á árinu 2025.“ Norðurlandaráð hefur beðið ríkisstjórnirnar um að haga vinnunni þannig að bein tillaga að uppfærðum samningi liggi fyrir árið 2026.

Það eru mjög góðar fréttir að Norræna ráðherranefndin hafi tekið vel í ákvörðun okkar og tilmæli og að ríkisstjórnirnar sjái fyrir sér að fyrsti áfangi klárist á árinu 2025. Saman geta ríkisstjórnir og þingmenn Norðurlanda tryggt að Helsingforssamningurinn verði áfram öflugur og mikilvægur grunnur að norrænu samstarfi. Þetta er sögulegt tækifæri til að færa grundvöll samstarfsins til nútímans, öllum Norðurlandabúum til heilla.

Bryndís Haraldsdóttir, forsætisnefnd Norðurlandaráðs

Skrifað var undir Helsingforssamninginn 23. mars 1962. Hann hefur verið uppfærður sjö sinnum, síðast árið 1996. Margt heftur breyst síðan þá og aðeins er lítillega fjallað um mikilvæg málefni á borð við loftslagsmál, náttúruvernd og sjálfbærni í samningnum í sinni núverandi mynd og málefna á borð við varnarmál, viðbúnað og stafvæðingu er yfirhöfuð ekki getið.

Alþjóðlegar forsendur samstarfsins hafa sömuleiðis breyst mikið frá því samningurinn var samþykktur. Með inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO eru nú öll norrænu löndin aðilar að bandalaginu. Því fylgja nýjar kröfur til samstarfsins. Jafnframt er orðalag samningsins úrelt og þarf að færa það til nútímalegra horfs svo það endurspegli pólitískan og samfélagslegan veruleika.

Vinnan við endurnýjun Helsingforssamningsins verður áfram á dagskrá Norðurlandaráðs og verður málið tekið upp á ný á Norðurlandaráðsþinginu í október 2025. Þá má búast við því að norrænu ríkisstjórnirnar geri nánari grein fyrir vinnunni við uppfærslu hinnar samnorrænu stjórnarskrár.

Ferlið fram að þessu:

Á Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavík 2024 var tillaga um endurnýjun Helsingforssamningsins samþykkt einróma.