Forseti Norðurlandaráðs: Grænland gegnir lykilhlutverki í norrænu samstarfi

22.08.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Vestnordisk Råd

Forseti Norðurlandaráðs tók þátt í 40 ára afmælisfögnuði Vestnorræna ráðsins í Ilulissat.

„Ég hef hlakkað mjög til þessarar heimsóknar. Grænland er stórbrotið land. Tímann hér í Nuuk og Ilulissat hef ég nýtt til fundahalda með grænlenskum aðilum, fyrst og fremst til að kynnast fólki og heyra hvað það hefur að segja en einnig til að koma þeim skilaboðum á framfæri að við hjá Norðurlandaráði fylgjumst grannt með þróuninni og berum hag Grænlands fyrir brjósti.“

Þetta segir Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, sem heimsótti Grænland í fyrsta sinn í vikunni.

Í Ilulissat tók hún þátt í ársfundi Vestnorræna ráðsins, þar sem 40 ára afmælinu var fagnað en jafnframt fjögurra áratuga nánu samstarfi ráðanna tveggja.

Á meðan á heimsókninni stóð fóru einnig fram nokkrir fundir, bæði í Ilulissat og Nuuk. Björklund heimsótti meðal annars grunnskóla í Ilulissat auk þess sem Brian Jensen, sjóliðsforingi hjá norðurslóðadeild danska sjóhersins, fór yfir stöðu mála varðandi öryggismál og framtíðaráskoranir.

Norðurlandaráð hefur margoft ítrekað eindreginn stuðning sinn við grænlensku þjóðina og skilyrðislausan og ófrávíkjanlegan rétt hennar til yfirráða yfir eigin landi og framtíð. Jafnframt vill ráðið efla þátttöku Álandseyja, Færeyja og Grænlands í norrænu samstarfi.

Norðurlandaráð hefur á undanförnum árum beint sjónum sínum í vaxandi mæli að norðurslóðum. Í október tekur ráðið þátt í Arctic Circle Assembly í Reykjavík í nánu samráði við Vestnorræna ráðið.

Heléne Björklund i møtet med Vestnordisk Råd

Heléne Björklund i møtet med Vestnordisk Råd.

Ljósmyndari
Sigurður Ólafsson

Forseti Norðurlandaráðs tók þátt í fundi og 40 ára afmælisfögnuði Vestnorræna ráðsins í Ilulissat.

Yfirlýsing forsætisnefndar Norðurlandaráðs um Grænland frá 31. mars 2025

Á norrænum leiðtogafundi í Helsinki í mars lýsti forsætisnefnd Norðurlandaráðs yfir eindregnum og skilyrðislausum stuðningi við grænlensku þjóðina og ófrávíkjanlegan rétt hennar til yfirráða yfir eigin landi og framtíð.