Liprari greiðslur á milli landa – norrænt samstarf í brennidepli í Stokkhólmi

16.05.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Anders Löwdin/Sveriges riksdag

Niklas Wykman, ráðherra fjármálamarkaða í Svíþjóð, ásamt meðlimum Stjórnsýsluhindranahóps Norðurlandaráðs sem átti frumkvæði að samráðsfundinum.

Hvernig getum við gert það einfaldara að millifæra fé, opna bankareikninga og nota greiðsluþjónustu í farsíma alls staðar á Norðurlöndum? Þetta var á meðal þess sem fjallað var um þegar fulltrúar Norðurlandaráðs hittu fulltrúa löggjafarvaldsins, stjórnvalda, stofnana og banka í Stokkhólmi þann 7. maí á norrænum samráðsfundi um greiðslur þvert á landamæri.

Sameiginlegt markmið allra sem tóku þátt var að skapa heildstæðara norrænt kerfi utan um rafrænar greiðslur fyrir jafnt almenning sem fyrirtæki. Ef við ætlum okkur að verða samþættasta svæði heims verður að vera hægt að greiða með einföldum hætti, hvar sem maður er staddur á Norðurlöndum.

Niklas Wykman, ráðherra fjármálamarkaða í Svíþjóð, tók þátt í fundinum þar sem rædd voru mál sem tengdust bæði tæknilegum lausnum og þörfinni á sameiginlegu regluverki. Einkum var áhersla lögð á þrjú atriði: Að greiða fyrir millifærslum á milli banka á milli norrænna landa, að gera það einfaldara að opna bankareikning í öðru norrænu landi og að greiða fyrir snurðulausri notkun á greiðsluþjónustum á borð við Swish, Vipps og MobilePay þvert á landamærin.

Samráðsfundurinn var mikilvægt skref í átt til samþættara fjármálaumhverfis á Norðurlöndum sem er forsenda bæði hreyfanleika og vaxtar á svæðinu. Markmiðið er skýrt: Að í daglegu lífi verði jafn einfalt að sjá um fjármál sín handan landamæranna og heima fyrir.