Málefni barna og ungmenna í brennidepli

20.06.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Laura Karlin
Norræna barna- og ungmennanefndin, NORDBUK, kom saman í Helsinki og ræddi meðal annars ráðstefnuna Nordic Baltic Youth Summit 2025, tækifæri ungs fólks til að taka þátt í ungmennasveitarstjórnum á Norðurlöndum og rekstri 0–30-áætlunarinnar auk skólakosninga á Norðurlöndum.

Réttindi barna og ungmenna eru ofarlega á baugi í norrænu samstarfi.

Norræna barna- og ungmennanefndin, NORDBUK, veitir ráðgjöf og samhæfir allt starf Norrænu ráðherranefndarinnar að málefnum barna og ungmenna og er ætlað að

  • taka saman og miðla þekkingu um lífskjör barna og ungmenna á Norðurlöndum.
  • stuðla að samþættingu sjónarmiða réttinda og málefna barna og ungmenna í störf Norrænu ráðherranefndarinnar.
  • styðja börn og ungmenni til skipulagningar og þátttöku í lýðræðislegum ferlum.
Ljósmyndari
Laura Karlin

NORDBUK ræddi ráðstefnuna Nordic Baltic Youth Summit 2025, tækifæri ungs fólks til að taka þátt í ungmennasveitarstjórnum á Norðurlöndum, skólakosningar á Norðurlöndum og „Open Call-auglýsingu* um skipan stjórnar yfir áætluninni Norðurlönd 0–30.

Einnig heimsótti NORDBUK Aseman Lapset/Walkers sem eru frjáls félagasamtök sem vinna með ungu fólki í erfiðri stöðu í Helsinki ásamt því að taka þátt í ráðstefnu Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um réttindi barna og ungmenna í kórónuveirufaraldrinum.

 

Deginum lauk með fundi NORDBUK með umboðsmönnum barna á Norðurlöndum.

 

*Hvað er open call-auglýsing? Open call-auglýsing er opin auglýsing sem þýðir að ungu fólki gefst færi á að vera með í stjórninni sem ákveður hvaða verkefni hljóta stuðning í gegnum áætlunina Norðurlönd 0–30. Nánari upplýsingar koma eftir sumarleyfi.

NVC= skammstöfun sem stendur fyrir Norrænu velferðarmiðstöðina.

 

Ljósmyndari
Laura Karlin
Ljósmyndari
Laura Karlin