Norðurlandaráð vill tryggja tungumálaréttindi samískra barna
Norræna þekkingar- og menningarnefndin á þemaþingi Norðurlandaráðs 2025 í finnska þinghúsinu í Helsinki.
Um er að ræða þingmannatillögu frá Norrænum vinstri grænum, (NGV) um að framleiða meira samískt námsefni og mennta samíska kennara. Samkvæmt nefndinni þarf að kanna hvernig staðið er að því að uppfylla tungumálaleg réttindi og þarfir samískra barna á Norðurlöndum. Nefndin kallar eftir auknu samstarfi á milli Finnlands, Noregs og Svíþjóðar til að tryggja framtíð samísku málanna.
Nefndin leggur til að skipaður verði norrænn samstarfshópur til að ryðja úr vegi hindrunum fyrir samstarfi skóla á svæðum Sama. Þá vill nefndin sjá beinar aðgerðir svo tryggja megi réttindi samískra barna til menntunar á móðurmáli sínu með auknu norrænu samstarfi.
„Norrænu löndin bera sameiginlega ábyrgð á því að tryggja framtíð samísku málanna. Það að börn eigi rétt á kennslu á móðurmáli sínu er forsenda þess að málin verði áfram til,“ segir Veronika Honkasalo, formaður nefndarinnar.
Skortur á samískum kennurum
Áríðandi er að takast á við kennaraskortinn. Mikil þörf er á samískum kennurum en í dag útskrifast ekki nema 25–30 kennarar á ári en þörf er á umtalsvert fleiri.
Liv Inger Somby, rektor Samíska háskólans (Sámi allaskuvla), heimsótti Norðurlandaráð í febrúar og lagði þá áherslu á mikilvægi þess að Norðurlönd taki höndum saman til að takast á við skortinn á samískum kennurum. Í dag getur Samíski háskólinn útskrifað 25–30 kennara á ári en þörf er á mun fleiri.
Nefndin telur að bæði Norræna ráðherranefndin og stjórnvöld í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eigi að vinna að því að efla samstarf sitt til frambúðar til að fjölga samískum kennurum með kennsluréttindi og auka framboð samísks kennsluefnis.
Samnorræn ábyrgð á samískum málum
Nefndin vill sjá norrænu löndin axla sameiginlega ábyrgð á framtíð samsíku tungumálanna og telur að málið eigi að vera ofarlega á dagskrá. Samkvæmt tungumálayfirlýsingu Norrænu ráðherranefndarinnar frá 2024 bera norrænu löndin sameiginlega ábyrgð á því að vernda og þróa minnihlutamál.
„Það þarf norrænt samstarf til að tryggja að samísk börn hafi aðgang að kennslu á móðurmáli sínu,“ segir Lars Mejern Larsson varaformaður.
Nefndin er einhuga um að styðja við tillöguna og leggur áherslu á mikilvægi þess að norrænu löndin vinni saman að því að afnema stjórnsýsluhindranir og finna sameiginlegar lausnir. Nefndin vinnur nú áfram með tillöguna og vill sjá beinar aðgerðir verða að veruleika með auknu norrænu samstarfi.