EXPO 2025: Jafnrétti er mikilvægur þáttur í samkeppnishæfni
Í öllum hornum norræna skálans var skrafað um japönsk og norræn jafnréttismál: Ida Heimann Larsen, skrifstofustjóri Norrænu ráðherranefndarinnar og Halla Nolsøe Poulsen, formaður jafnréttisnefndar Færeyja
Fyrir skemmstu var haldinn jafnréttisdagur í norræna skálanum á heimssýningunni EXPO 2025 í Osaka í Japan. Sirið Stenberg, utanríkis-, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Færeyja, hleypti dagskránni formlega af stokkunum ásamt Idu Heimann Larsen, skrifstofustjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Í ræðu sinni beindi ráðherrann sjónum að diplómatísku samstarfi á milli Japan, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar sem stofnað var til árið 2024. Jafnréttismál eru lykilþáttur í því samstarfi:
Jafnrétti er hornsteinninn að hinu nýtilstofnaða diplómatíska samstarfi Japan og Norðurlanda. Þegar reynsla Norðurlanda af jafnréttismálum og reynsla Japan af nýsköpun koma saman verður til samsetning sem getur orðið leiðarljós bæði fyrir okkur sjálf og á alþjóðavettvangi.
Jafnrétti á vinnumarkaði eykur samkeppnishæfni
Jafnrétti tekur til fjölmargra þátta og einn þeirra sem hvað mestu máli skiptir varðandi samkeppnishæfni er jafnrétti á vinnumarkaði, eins og Ida Heimann Larsen, skrifstofustjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, benti á:
„Þegar konur og karlar taka þátt á jafnréttisgrundvelli á vinnumarkaði og heima fyrir eykst nýsköpun, inngilding og efnahagsleg sjálfbærni í samfélaginu,“ sagði Ida Heimann Larsen. Hún undirstrikaði að þetta skipti grundvallarmáli fyrir bæði hagvöxt og samkeppnishæfni ríkja, enda sýni fjölmargar rannsóknir að vinnuhópar sem skipaðir eru bæði körlum og konum séu bæði afkastameiri og betur í stakk búnir að leysa úr áskorunum. Í Japan er vinnumarkaðurinn ekki kominn jafn langt varðandi jafnréttismál og sá norræni og raunar munar almennt töluvert miklu á Norðurlöndum og Japan þegar kemur að jafnrétti. Samkvæmt jafnréttisvísi World Economics Forums er Japan í 118. sæti af 147 löndum á meðan norrænu löndin raðast í efstu sætin.
Hreyfing í átt til aukins jafnréttis er hafin í Japan
Þótt þróun jafnréttismála í Japan hafi ekki verið með sama hætti og á Norðurlöndum er hreyfing hafin í rétta átt að sögn Masahiro Kuniyuki, forstjóra Mitsubishi UFJ Financial Group Inc í Japan. Hann fagnar norrænum aðgerðum sem stuðla að auknu jafnrétti á vinnumarkaði. Sjálfur vinnur Masahiro Kuniyuki markvisst að því að auka jafnrétti hjá vinnuafli Mitsubishi UFJ Financial Group Inc. Fyrir því eru ýmsar ástæður:
„Ég hef sjálfur upplifað að til séu sjónarhorn og blæbrigði sem ég, sem karlmaður, kem ekki auga á en konur sjá. Þess vegna er mikilvægt tekið sé tillit til sjónarmiða bæði kvenna og karla. Þetta skiptir máli í faglegu samhengi en einnig fyrir mig persónulega. Ég er faðir tveggja dætra og eiginmaður konu minnar og mér er mjög umhugað um að þær hafi sömu tækifæri og drengir og karlar í Japan,“ undirstrikar Masahiro Kuniyuki.
Fæðingarorlof fyrir bæði mæður og feður
Halla Nolsøe Poulsen, formaður jafnréttisnefndar Færeyja, benti á annað mikilvægt sjónarhorn sem skiptir sköpum fyrir jafnrétti á vinnumarkaði, þ.e. jafnari skiptingu fæðingarorlofs á milli feðra og mæðra.
„Þátttaka kvenna á vinnumarkaði og aukin vaxandi hlutverk karla í fjölskyldulífi hefur umbreytt norrænum samfélögum. Þessar breytingar hafa ekki aðeins komið konum til góða heldur hafa þær styrkt efnahag okkar og gert velferðarkerfin sjálfbærari,“ sagði Halla Nolsøe Poulsen.