Norðurlönd taka sér stöðu með LGBTI-fólki og mótmæla hvers konar ofbeldi.

27.06.22 | Fréttir
 Anne Beathe Tvinnereim lägger ner blommor i Oslo 2022.
Photographer
Ingeborg Gloppen Johnsen / Norges Utenriksdepartement
Samstarfsráðherrar Norðurlanda lögðu í dag blóm á þann stað sem voðaglæpur var framinn í höfuðborg Noregs á laugardagskvöld. Í því sambandi lýstu ráðherrarnir yfir eftirfarandi:

Óslóarborg í Noregi hefur orðið vettvangur hryllilegrar árásar á saklaust fólk. Tveir létu lífið og margir særðust. Orð megna sín lítils gagnvart slíkum harmleik. Hugur okkar er hjá hinum látnu og sáru og öllum aðstandendum þeirra eftir þennan hræðilega atburð.

Norðurlönd taka sér stöðu með LGBTI-fólki og mótmæla hvers konar ofbeldi.

Á þessum sorgartímum viljum við minna á norræna samstöðu um mannréttindi, sameiginleg gildi og opin samfélög þar sem allir geta átt heima. Árásin sýnir að við megum aldrei unna okkur hvíldar í varðstöðunni um grundvallargildi okkar.

Contact information