Norðurlönd verði áfangastaður framtíðarinnar í sjálfbærri ferðaþjónustu
Hin nýja norræna áætlun Nordic Tourism Plan 2025-2030 var kynnt á norrænu ferðaþjónusturáðstefnunni í dag.
Með þessari nýju áætlun sameinumst við um að byggja Norðurlönd upp sem leiðandi áfangastað í sjálfbærri ferðaþjónustu. Markmiðið er að skapa ferðamannaiðnað sem bæði býr til efnahagslegan vöxt og störf ásamt því að vernda og efla menningararf okkar.
Þrír grundvallarþættir varða veginn
Áætlunin byggist á þremur lykilþáttum. Sjálfbærni á öllum sviðum, nýsköpun og stafvæðingu ásamt auknu landamærasamstarfi. Markmiðið er að búa til ferðamannaiðnað sem ekki aðeins skilar efnahagslegum vexti og býr til störf heldur verndar einnig og eflir norræna náttúru og menningararf.
Áhersla á sjálfbærni og eignarhald innan svæðisins
Ferðaþjónusta skiptir miklu máli, bæði svæðisbundið og á heimsvísu. Á Norðurlöndum skilar hún ekki aðeins efnahagslegum ávinningi heldur hefur hún umtalsverð áhrif á nærsamfélög og sjálfbærni. Sjálfbærni vísar hér bæði til umhverfislegra þátta, svo sem að draga úr losun koldíoxíðs og vernda líffræðilega fjölbreytni, og þess að tryggja eignarhald innan svæðisins. Í hinni nýju áætlun er jafnframt áhersla lögð á að skapa störf og forðast of mikla ásókn ferðamanna.
Stafvæðing og nýsköpun sem drifkraftur
Í áætluninni er einnig bent á að stafvæðing og tæknileg nýsköpun séu lykilatriði í ferðaþjónustu framtíðarinnar. Meðal annars á að nota tækni til að stýra flæði ferðamanna og bæta upplifun þeirra. Þá á að skala núverandi lausnir upp alls staðar á svæðinu í stað þess að byrja upp á nýtt á nýjum tilraunaverkefnum.
Barist um athyglina – Norðurlönd sem eitt og sama vörumerkið
Alþjóðleg samkeppni í ferðaþjónustu hefur aukist. Með þessari áætlun stefna Norðurlöndin að því að styrkja sameiginlega ímynd sína sem ósvikinn, sjálfbær og einstakur áfangastaður. Til þess þarf bæði ábyrga markaðssetningu, þróun nýrra ferðamannavara og samstarf við aðrar atvinnugreinar, svo sem matvælaiðnaðinn, menningargeirann og viðskiptaferðaþjónustu.
Sameiginlegt átak í þágu sameiginlegrar framtíðar
Nordic Tourism Plan 2025-2030 er ekki aðeins áætlun heldur boð um samstarf. Ferðaþjónustuaðilar, stjórnvöld og nærsamfélög eru hvött til að taka virkan þátt í að móta ferðaþjónustu sem gagnast bæði fólki og jörðinni. Með öflugu norrænu samstarfi og sameiginlegum gildum hefur svæðið tækifæri til að verða leiðandi í þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu framtíðarinnar.
Ráðstefnan The Nordic Tourism Conference var haldin af Visit Sweden í samtarfi við Norrænu ráðherranefndina.