Norrænir dómsmálaráðherrar: Samfélagsöryggi og viðnámsþróttur efla réttarríkið og lýðræði

12.11.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Eythor Arnason/norden.org
Norrænu dómsmálaráðherrarnir hafa samþykkt sameiginlega yfirlýsingu sem undirstrikar mikilvægi þess að efla samfélagsöryggi, viðnámsþrótt og viðbúnað á Norðurlöndum. Í yfirlýsingunni er áhersla lögð á að réttarríkið og lýðræði séu háð kröftugum og viðnámsþolnum samfélögum, einkum á krísu- og óvissutímum.

Yfirlýsingin byggir á yfirlýsingu norrænu forsætisráðherranna frá því í maí 2025 um að efla viðnámsþrótt og tryggja skilvirkar almannavarnir. Bent er á norræna líkanið, með öflugar lýðræðislegar stofnanir, mikið traust og samstarf á milli landa, sem grundvöll til þess að takast á við áskoranir í framtíðinni.

„Ég tel mikilvægt að við norrænu dómsmálaráðherrarnir skuldbindum okkur í sameiningu til þess að efla samfélagsöryggi, traust til yfirvalda og viðnámsþol lýðræðisins og réttarríkisins. Við verðum áfram að vinna náið saman og miðla góðum starfsháttum og efla samstarf á milli stofnana til þess að berjast gegn hryðjuverkum, net- og fjölþátta ógnum og koma í veg fyrir brotastarfsemi á milli landa, spillingu og mansal,“ segir Leena Meri, dómsmálaráðherra Finnlands.

Ráðherrarnir undirstrika að standa verði vörð um grundvallarfrelsi og -réttindi, einnig við óvenjulegar aðstæður. Efla á viðnámsþol samfélagsins með fyrirbyggjandi aðgerðum gegn ofbeldisfullri öfgahyggju, hryðjuverkum, gengjamyndun og öfgavæðingu. Jafnframt á að viðhalda trausti almennings til yfirvalda en það er lykilatriði í því að geta tekist sameiginlega á við krísur.

Í norrænu samstarfsáætluninni á sviði dómsmála 2025–2030 eru nokkur forgangssvið nefnd:

  • Skipti á upplýsingum um net- og fjölþátta ógnir: Löndin munu skiptast á góðum starfsháttum og efla samstarfið á milli helstu stofnana til að takast sameiginlega á við ógnir.
  • Barátta gegn brotastarfsemi þvert á landamæri: Skipulögð glæpastarfsemi, spilling og mansal kallar á samhæfingu á bæði pólitísku stigi og embættismannastigi.
  • Traust sem grundvöllur viðnámsþróttar: Öflugt traust á milli almennings, yfirvalda og borgaralegs samfélags skiptir sköpum fyrir viðbúnað samfélagsins.
  • Regluleg afgreiðsla mála er varða viðbúnað: Mál sem varða viðbúnað verða reglulega tekin upp á norrænum fundum og í starfshópum.

Undir yfirlýsinguna skrifa dómsmálaráðherrar Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Færeyja og Álandseyja.