Raddir ungs fólks heyrast vel á COP29
Ungmennaráð um loftslagsmál, kröfur og væntingar til viðræðnanna, hringborðsumræður, miðlun á reynslu úr stjórnmálum eru á meðal þess sem norræn ungmenni munu vekja athygli á þegar þau taka til orðs á loftslagsviðræðum Sameinuðu þjóðanna í Bakú.
Norræni skálinn gefur ungmennum vettvang
„Það er erfitt fyrir ungmenni að fá aðgang að loftlagsviðræðunum. Þegar við komumst að er megináherslan lögð þekkingarmiðlun, hliðarviðburði og stefnumótun milli landanna,“ segir Lise Coermann Nygaard, fulltrúi ungs fólks í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir Danmörku.
Norræni skálinn gefur ungmennum frá Norðurlöndum og öðrum löndum heims vettvang til að setja eigin mál á dagskrá og ræða svæðisbundnar og alþjóðlegar áskoranir í loftlagsmálum. Með sínum tíu viðburðum eru norræn ungmenni áberandi í dagskrá Norræna skálans, sem verður einnig vettvangur viðburða háskóla, rannsóknarstofnana, félagasamtaka og norrænna ríkisstjórna.
Þrír hápunktar
Miðvikudaginn 13. nóvember 13.15-14.00 UTC+4 kynna evrópskir fulltrúar ungmenna kröfur sínar og væntingar til viðræðnanna. Klukkan 16.00 UTC+4 sama dag segja fulltrúar ungmenna frá Finnlandi, Planetary Health Alliance Western Africa og YOUNGO frá vonum sínum og óskum fyrir viðræðurnar.
Fimmtudaginn 21. nóvember kl. 9.30-10.15 UTC+4 bjóða norskir og danskir fulltrúar ungmenna til umræðna um hvernig bregðast skuli við bæði loftlags- og náttúruvandanum og kl. 14.30 UTC+4 verður staða loftslagsaðgerðasinna í heiminum skoðuð.
Á síðasta degi viðræðnanna, föstudaginn 22. nóvember kl. 13.15 UTC+4, fara fram hringborðsumræður ungmenna um niðurstöður viðræðnanna og veginn að COP30 árið 2025.
Ekki missa af viðburðum ungmennanna í Norræna skálanum í Bakú. Öllum viðburðum er streymt á norden.org.