Silja Dögg Gunnarsdóttir nýr forseti Norðurlandaráðs

31.10.19 | Fréttir
Silja Dögg Gunnarsdóttir och Oddný Harðardóttir
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org

Forseti og varaforseti Norðurlandaráðs 2020, þær Silja Dögg Gunnarsdóttir og Oddný Harðardóttir.

Silja Dögg Gunnarsdóttir gegnir embætti forseta Norðurlandaráðs árið 2020. Hún var kjörin í embættið á þingi ráðsins í Stokkhólmi, sem var slitið á fimmtudaginn.

Íslendingar gegna formennsku í Norðurlandaráði árið 2020. Ísland hefur valið þrjú áherslusvið fyrir formennsku sína: að standa vörð um lýðræðið, meðal annars með því að berjast gegn falsfréttum, standa vörð um líffræðilegan fjölbreytileika og efla tungumálakunnáttu innan Norðurlanda.

„Við leggjum mikla áherslu á líffræðilegan fjölbreytileika, einkum á það að virkja ungt fólk á Norðurlöndum í starfi á því sviði og einnig á líffræðilegan fjölbreytileika hafsins. Með hliðsjón af ástandinu í loftslagsmálum er þetta afar mikilvægt starf,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, sem situr í flokkahópi miðjumanna í Norðurlandaráði.

Baráttan gegn falsfréttum

Hvað falsfréttirnar varðar vill Ísland meðal annars leita svara við því hvernig yfirvöld, stjórnmálamenn, borgaralegt samfélag og aðrar stofnanir samfélagsins geta brugðist við upplýsingaóreiðu og dreifingu á rangfærslum. Einnig vill Ísland kanna hvaða hlutverki norrænt samstarf getur gegnt í baráttunni við falsfréttir og því að standa vörð um lýðræðið.

Þriðja áherslusvið Íslands og hins nýja forseta er tungumálakunnátta innan Norðurlanda. Rannsóknir benda til þess að Norðurlandabúum gangi sífellt verr að eiga samskipti, bæði að skilja talað mál og tjá sig í ræðu og riti.

Mikilvægt að hlúa að litlum tungumálum

Það er áhyggjuefni, að sögn Silju Daggar. Hún leggur áherslu á að skilningur á tungumálum annarra veiti fólki einnig dýpri skilning á öðrum samfélögum, menningu þeirra og sögu.

„Við getum bætt okkur og orðið meðvitaðri um mikilvægi þess að standa vörð um tungumálin okkar. Þetta eru allt lítil mál og enskan sækir að þeim úr öllum áttum.

Silja Dögg Gunnarsdóttir gegnir embætti forseta Norðurlandaráðs 2020. Hún tekur við keflinu af hinum sænska Hans Wallmark. Oddný Harðardóttir í flokkahópi jafnaðarmanna var kjörin í embætti varaforseta.

Silja Dögg er þingmaður Framsóknarflokksins og hefur setið á Alþingi frá 2013.

Norðurlandaráð er opinber samstarfsvettvangur þjóðþinga Norðurlanda. Ráðið skipa 87 fulltrúar frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð og Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi.