Sindre S. Bornstein nýr framkvæmdastjóri Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar

25.10.24 | Fréttir
Ljósmyndari
SB
Í febrúar 2025 tekur Sindre S. Bornstein við sem nýr framkvæmdastjóri Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Sindre hefur alþjóðlega reynslu af stjórnun, en hann hefur á ferli sínum unnið að diplómatískum verkefnum, viðskiptaþróun í iðnaði, sprotafyrirtækjum í tæknigeiranum og grænum umskiptum, ekki síst á sviði skipasiglinga.

Það er mér ánægja að bjóða Sindre velkominn sem framkvæmdastjóra Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar og ég hlakka til að fá að njóta reynslu hans af nýsköpun og grænum umskiptum. Sindre kemur beint úr stöðu þar sem áherslan var á bláan efnahag og græn umskipti – tvö mikilvæg svið fyrir Norrænu ráðherranefndina.

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Reynsla úr bæði einkageiranum og hjá hinu opinbera

Sindre kemur úr starfi sem Vice President, Digital & Decarbonisation, VPS, Veritas (Osló). Þar bar hann viðskiptalega ábyrgð á verkefnum VPS að því að minnka kolefnislosun skipa. Áður hafði hann starfað fyrir utanríkisráðuneytið í Noregi, m.a. á skrifstofu forsætisráðherra og sem ræðismaður á ræðismannsskrifstofu Noregs í San Francisco.

- "Þegar ég starfaði í San Francisco naut ég þeirrar gæfu að vinna náið með Nordic Innovation House í Palo Alto og sá með eigin augum að Norðurlönd eru öflugt vörumerki á einstaklega hörðum samkeppnismarkaði. Þar unnum við saman að uppbyggingu sem skilaði árangri. Meðal annars hjá norrænum sprotafyrirtækjum og vaxtarfyrirtækjum. Á meðal annars er þetta sú tegund nýsköpunarstarfs sem ég vil taka enn meiri þátt í,“ segir Sindre S. Bornstein og bætir við:

- "Ég hef mikla tengingu við norrænt og alþjóðlegt samstarf og sé hve nauðsynlegt nýskapandi atvinnulíf er til að stuðla að sjálfbærri þróun og finna lausnir á alþjóðlegum samfélagsáskorunum. Staða Norðurlandanna er einstök og þau hafa skýra rödd á alþjóðavettvangi. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að vinna enn frekar að þessari þróun ásamt teyminu í Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni og í nánu samstarfi við deildir Norrænu ráðherranefndarinnar og mínar nýju systurstofnanir."

Þakkir til Svein Bergs

Þegar núverandi framkvæmdastjóri Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar Svein Berg lætur af störfum í byrjun næsta árs getur hann litið til baka til síðustu átta ára og þess öfluga hóps og góða árangurs sem hann hefur skapað og þess aukna sýnileika sem geta norrænna fyrirtækja hefur fengið.