Solvej Balle hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022

01.11.22 | Fréttir
Solvej Balle
Photographer
Magnus Fröderberg, norden.org
Danski rithöfundurinn Solvej Balle hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022 fyrir skáldsöguna Om udregning af rumfang I, II og III. Solvej Balle veitti verðlaununum viðtöku í Helsinki á þriðjudagskvöld fyrir verk sem dómnefndin kallar meistaraverk til tímans.

Bókmenntaverðlaunin, sem eru 60 ára í ár, voru veitt af finnsku forsetafrúnni, ljóðskáldinu Jenni Haukio, við verðlaunaathöfn í beinni útsendingu frá Tónlistarhúsinu í Helsinki á þriðjudagskvöld.

Rökstuðningur dómnefndar

Aðalpersónan í verki Solvej Balle, Tara Selter, hefur stigið óviljug frá borði tímans í hinu mikilfenglega prósaverki Om udregning af rumfang („Um útreikning rúmmáls“, hefur ekki komið út á íslensku). Í veruleika hennar endurtekur 18. nóvember sig aftur og aftur. Allt í einu upplifir hún ekki lengur dagaskil, mánaðamót eða árstíðaskipti. Fólkið í kringum hana eldist ekki og á vitanlega erfitt með að botna í hinum nýja og furðulega reynsluheimi Töru. Þessi reynslugjá reynist gjöfull jarðvegur fyrir miklar bókmenntir, því að hún getur af sér grundvallarspurningar um þau áhrif sem einstaklingsupplifun okkar af tíma og rúmi hefur á tilveru okkar og sambönd.

 

Nú eru útkomin þrjú af alls sjö fyrirhuguðum bindum um dvöl Töru fyrir utan gang tímans. Þessi þrjú fyrstu bindi mynda þegar samhangandi heild sem hver nýr hluti eykur við á nýja og ófyrirséða vegu, og ögrar um leið hugmyndum okkar um listaverkið sem snyrtilega og afmarkaða einingu. Þannig lætur Solvej Balle lesandann endurupplifa tímann, ekki síst samtímann, og þau sjónarmið sem etja kappi innan hans varðandi viðfangsefni á borð við hagvöxt, aktívisma og kyn. Gegnum verkið skynjum við að samtími okkar er eitthvað sem við eigum sameiginlegt, þó að við lifum kannski stundum hvert í sinni „loftbólu“.

 

Verðlaunin eru veitt fyrir þrjú fyrstu bindin í alls sjö fyrirhuguðum bindum um dvöl Töru Selter fyrir utan gang tímans. Fyrstu bindin þrjú mynda strax þétt samhangandi heild sem hvert bindi eykur við á nýja og ófyrirséða vegu. Með Om udregning af rumfang hefur Solvej Balle skrifað meistaraverk til tímans. Með verkinu stígur Solvej Balle aftur fram á sjónarsviðið svo að um munar, ekki bara á svið danskra eða norrænna fagurbókmennta, heldur einnig evrópskra.

 

Solvej Balle: Om udregning af rumfang I, II og III, Pelagraf 2020–2021.

Um Solvej Balle

Solvej Balle er fædd árið 1962. Frumraun hennar var bókin  Lyrefugl  sem kom út árið 1986 („Lýrufugl“, hefur ekki komið út á íslensku). Seinna sendi hún frá sér eitt lofaðasta verk danskra bókmennta á 10. áratugnum,  Ifølge loven  (1993, „Lögum samkvæmt“, hefur ekki komið út á íslensku). Síðan þá hafa bækurnar þó ekki verið margar:  Det umuliges kunst  (2005, „List hins ómögulega“, hefur ekki komið út á íslensku) en þar setur höfundur fram kenningar um myndlist, pólitíska endurminningaesseyjan  Frydendal og andre gidsler  (2008, („Frydendal og fleiri gíslar“, hefur ekki komið út á íslensku) og tvö stutt prósaverk,  Hvis  og  , sem komu út samtímis árið 2013. Með  Om udregning af rumfang  stígur Solvej Balle aftur fram á sjónarsviðið svo að um munar.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Hver verðlaunahafi fær verðlaunastyttuna Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur og eru verðlaunin veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.

Vindertale af Solvej Balle, vinder af Nordisk Råds litteraturpris 2022 for romanen ”Om udregning af rumfang I, II og III” Overrækker af prisen var Jenni Haukio, digtere og den finske præsidents ægtefælle.