Þetta eru verðlaunahafar Norðurlandaráðs 2020

27.10.20 | Fréttir
Vinnere av Nordisk råds pris 2020
Photographer
Baard Henriksen, Niklas Sandström, Jose Figueroa, Niklas Sandström, Mika Ranta, Jens-Kjeld Jensen, Erle Kyllingmark / collage norden.org
Monika Fagerholm, Jens Mattsson, Jenny Lucander, Dag Johan Haugerud, Yngve Sæther, Sampo Haapamäki og Jens-Kjeld Jensen tóku við verðlaunum Norðurlandaráðs 2020 á stafrænni verðlaunaafhendingu á þriðjudagskvöld. COVID-19 kom í veg fyrir afhendingu verðlaunanna á Íslandi og þess í stað voru handhafar verðlaunanna fimm kynntir á öðruvísi verðlaunahátíð á netinu.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2020

Finnski rithöfundurinn Monika Fagerholm hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2020 fyrir skáldsöguna Vem dödade bambi? („Hver drap Bamba?“). Monika Fagerholm hlaut verðlaunin fyrir verk sem ólgar af orku og fáguðum siðferðisboðskap.

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2020

Myndabókin Vi är lajon! („Við erum læón!“) eftir sænska rithöfundinn Jens Mattsson og finnska myndskreytinn Jenny Lucander hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2020. Verkið stendur staðfastlega með barninu og sjónarhorn barnsins skín í gegn í bæði texta og myndskreytingum.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2020

Norska kvikmyndin Barn („Börn“) eftir handritshöfundinn og leikstjórann Dag Johan Haugerud og framleiðandann Yngve Sæther hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2020. Þetta metnaðarfulla verk kannar sambandið milli barns og fullorðins af innlifun og alvöruþunga og vekur ýmsar áleitnar spurningar.

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2020

Finnska tónskáldið Sampo Haapamäki hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2020 fyrir verkið Konsertto neljäsosasävelaskelpianolle ja kamariorkesterille („Konsert fyrir kvarttónapíanó og kammersveit“). Verkið þykir sameina með einstökum hætti náttúrulega tónlistargáfu, tilkomumikla færni og óþreytandi könnunarleiðangur á vit sígildrar tónlistarhefðar.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2020

Jens-Kjeld Jensen hlýtur verðlaunin fyrir viðleitni sína til að vekja athygli á fjölbreytileikanum í færeyskri náttúru. Jens-Kjeld á í samstarfi við náttúruvísindafólk um allan heim og hefur komið að kortlagningu á yfir 350 nýjum tegundum í Færeyjum.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Verðlaunahafinn hlýtur að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur og eru verðlaunin veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.