Sampo Haapamäki hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2020

27.10.20 | Fréttir
Sampo Haapamäki
Photographer
Nordisk kulturkontakt/Seppo Samuli

Sampa Haapamäki, sem hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2020, fékk verðlaunagripinn Norðurljós afhentan við litla athöfn hjá Norrænu menningargáttinni í Helsingfors.

Finnska tónskáldið Sampo Haapamäki hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2020 fyrir verkið „Konsertto neljäsosasävelaskelpianolle ja kamariorkesterille“ (Konsert fyrir kvarttónapíanó og kammersveit). Verkið þykir sameina með einstökum hætti náttúrulega tónlistargáfu, tilkomumikla færni og óþreytandi könnunarleiðangur á vit sígildrar tónlistarhefðar.

Sampo Haapamäki tók við verðlaununum frá Gyðu Valtýsdóttur, verðlaunahafa síðasta árs, á stafrænni verðlaunahátíð Norðurlandaráðs 2020 á þriðjudagskvöld. COVID-19 kom í veg fyrir afhendingu verðlaunanna á Íslandi og þess í stað voru handhafar verðlaunanna fimm kynntir á öðruvísi verðlaunahátíð á netinu.

 

Annað hvert ár, eins og í ár, eru tónlistarverðlaunin veitt núlifandi tónskáldi og hitt árið eru þau veitt tónlistarhópi eða -flytjanda.

Rökstuðningur dómnefndar

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2020 hlýtur verkið Konsertto neljäsosasävelaskelpianolle ja kamariorkesterille („Konsert fyrir kvarttónapíanó og kammersveit“) eftir Sampo Haapamäki. Verkið sameinar með einstökum hætti náttúrulega tónlistargáfu, tilkomumikla færni og óþreytandi könnunarleiðangur á vit sígildrar tónlistarhefðar. Það kemur hlustandanum á óvart með leiftrandi tónmáli, í senn glænýju og kunnuglegu, og fangar athygli hans með meistaralegum smáatriðum frá fyrsta takti til hins síðasta.

 

Konsertinn er afurð langvinns rannsóknarstarfs sem tónskáldið lagðist í: til að semja þá tónlist sem hann vildi þurfti Haapamäki að finna upp sérstakt hljóðfæri – nýtt kvarttónapíanó. Í hinum margslungna heimi míkrótónanna leynist ýmislegt sem listin getur bæði boðið og krafist af okkur: viðkvæmni, þolinmæði og íhygli.

 

Þungamiðjan í höfundarverki Sampo Haapamäki eru kvarttónarnir sem hann hefur rannsakað í tónsmíðum sínum í meira en 15 ár. Haapamäki hefur samið órafmagnaða tónlist fyrir ýmiss konar flutningshópa, allt frá sinfóníuhljómsveitum til kóra, auk fjölrása hálfrafmagnaðrar tónlistar. Einnig hefur hann komið að þróun nýrra hljóðfæra sem ætluð eru til flutnings á kvarttónaverkum hans.

 

Sem tónskáld hefur Sampo Haapamäki skapað sína eigin sérstöku rödd – rödd sem dómnefndinni er sönn ánægja að heiðra með þessum verðlaunum.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Hver verðlaun nema 350 þúsundum danskra króna og eru veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.