Þverrandi áhugi á að starfa við matvælaframleiðslu veldur áhyggjum

12.06.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Akseli Muraja
Áhugi ungs fólks á Norðurlöndum á því að vinna innan matvælakerfanna fer minnkandi um leið og aldrei hefur verið meiri þörf á því. „Þetta er mikil áskorun alls staðar á Norðurlöndum og saman getum við fundið lausnir til að skapa rými og tækifæri fyrir ungt fólk,“ sagði Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, eftir fund norrænu matvæla- og landbúnaðarráðherranna í Kuopio í Finnlandi.

Landbúnaður, matvælaiðnaður og sjávarútvegur á öllum Norðurlöndum stendur frammi fyrir miklum áskorunum eftir því sem vinnuafl eldist og brýn þörf er á nýsköpun og þróun. Á sama tíma fer ekki á milli mála á tímum sem einkennast af loftslagsbreytingum og geópólitískum óstöðugleika að matvælakerfi okkar skiptar sköpum fyrir viðbúnað samfélagsins og græn umskipti. Þessar áskoranir voru því ofarlega á dagskrá þegar norrænir ráðherrar fiskveiða, fiskeldis, matvæla og skógræktar komu saman í Kuopio dagana 11.–12. júní.

Ungt fólk er lykillinn að sjálfbærum matvælakerfum á Norðurlöndum

Á fundinum kynntu Thomas Niedomysl, rannsóknarstjóri hjá Nordregio og Jonas Kačkus Tybjerg, rannsóknaraðstoðarmaður hjá Nordregio, bráðabirgðaniðurstöður verkefnisins Growing Food(ies) þar sem skoðað var hvernig auka megi áhuga ungs fólks á að starfa á sviði matvælaframleiðslu. Meðal annars bentu þeir á mikilvægi réttrar aðstoðar, tengslaneta, menntunar og inngildingar.

„Greining okkar sýnir að með því að hampa ungum og farsælum frumkvöðlum og skapa fleiri vettvanga þar sem borg og landsbyggð mætast má breyta þessari mynd,“ segir Jonas Kačkus Tybjerg.

Einnig voru á staðnum ungir fulltrúar nokkurra norrænna landbúnaðarsamtaka sem ræddu við ráðherrana um leiðir til að takast á við þessar áskoranir.

„Ég tel mjög mikilvægt að við ræðum við ungt fólk og sköpum tækifæri til að komast inn í greinina. Matvælaiðnaðurinn þarf fleira ungt fólk á öllum stigum, í frumframleiðslu, iðnaði og rannsóknum. Ræður ungu bændanna undirstrikuðu einnig mikilvægi lífskraftsins í landsbyggðinni,“ sagði Sari Essayah, landbúnaðar- og skógræktarráðherra Finnlands.

„Umræðurnar í dag sýndu að unga fólkið er ekki bara vinnuafl framtíðarinnar, þau eru umbreytingaafl og í gegna lykilhlutverki við að skapa norrænt matvælakerfi sem er áhugavert, nýskapandi og inngildandi,“ sagði Karen Ellemann að lokum.

 

Ráðherrarnir ræddu jafnframt um traust og öruggt matvælaframboð, styrkleika norrænnar kjötframleiðslu í alþjóðlegum samanburði með tilliti til sjálfbærni, matar- og hreyfingarvenjur Norðurlandabúa, sameiginlegt norrænt framlag á COP30 og verkefnið Nýtt norræn matargerð.