Tillögur sérfræðings um aukið norrænt fjölmiðlasamstarf
Utskottet för kunskap och kultur i Norden under sommarmötet i Åbo
Norræna þekkingar- og menningarnefndin fyrir utan kastalann í Åbo.
Á sumarfundi nefndarinnar í Åbo var tekin fyrir þingmannatillaga frá flokkahópi miðjumanna sem fjallar um að efla norrænt samstarf um að styðja við óháða blaðamennsku og rannsóknarblaðamennsku. Tobias Lindberg, sérfræðingur hjá Norrænu gagnamiðstöðinni um fjölmiðlarannsóknir við Gautaborgarháskóla (Nordicom), heimsótti nefndina og setti fram tillögur að aðgerðum til að takast á við þær áskoranir sem fjölmiðlaumhverfi á Norðurlöndum stendur frammi fyrir.
Fá landssvæði í heiminum eru komin eins langt og Norðurlönd þegar kemur að stafvæðingu
Í tillögunni er lögð áhersla á að aðgengi að réttum upplýsingum, óháðri blaðamennsku og málefnalegri samfélagsumræðu skipti sköpum fyrir lýðræðið. Jafnframt er lýst vaxandi áhyggjum af svokölluðum „fréttaeyðimörkum“, þ.e. svæðum þar sem aðgengi að staðbundinni fjölmiðlun er takmarkað eða alls ekki til staðar. Nokkuð sem skýrslur gefa til kynna að greina megi í auknum mæli í norrænu löndunum.
Nefndin lýsti áhyggjum af þeirri þróun að æ fleiri staðbundnir fjölmiðlar hverfi á meðan trausti til hefðbundinna fjölmiðla er ógnað af falsfréttum og áhrifum tæknirisa.
Á fundinum kynnti Lindberg þrjár tillögur fyrir nefndinni:
- Að kortleggja fjölmiðlaumhverfi á Norðurlöndum
Rannsóknin á að finna góð dæmi um hvernig efla megi vandaða, óháða og siðferðilega sterka blaðamennsku á Norðurlöndum. Einnig á hún að kanna áhrif núverandi stuðnings við fjölmiðla og sýna hvað hefur reynst vel. - Að koma á fót norrænni hugsmiðju um framtíð blaðamennsku
Tillaga Lindbergs felst í því að bjóða sérfræðingum, fjölmiðlafólki og stefnumótendum til hringborðsumræðna til að skiptast á hugmyndum og ræða lausnir. Fyrirkomulagið getur byggst á fyrri reynslu Norrænu ráðherranefndarinnar af vinnu varðandi áhrif stóru tæknifyrirtækjanna. - Að greina áhrif evrópsku fjölmiðlalöggjafarinnar
Ný löggjöf ESB kann að hafa áhrif á bæði stefnumótun og fjölmiðlastarfsemi í norrænu löndunum. Lagt er til að gerð verði sérstök greining til að fylgja því eftir hvernig lögunum er framfylgt og hvaða breytingar þau hafa í för með sér.
Við verðum að taka ábyrgð á því að þróunin verði líka í rétta átt á Norðurlöndum. Blaðamennska er hornsteinn lýðræðisins og við viljum að Norræna ráðherranefndin stígi skýr skref til að tryggja framtíð hennar.
Áhersla á samnorrænar lausnir
Flokkahópur miðjumanna leggur jafnframt áherslu á að þótt norrænu löndin séu ofarlega í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að frelsi fjölmiðla beri ekki að taka frjálsum fjölmiðlum sem sjálfsögðum hlut.
Tillagan um aukið norrænt samstarf, auk tillagnanna þriggja frá sérfræðingnum, naut að mestu stuðnings meðal nefndarmanna en með fyrirvara frá Norrænu frelsi. Áfram verður fjallað um málið á septemberfundi nefndarinnar í Ósló.
Á sumarfundinum ræddi nefndin jafnframt afnám stjórnsýsluhindrana, einkum þegar kemur að skattlagningu fólks í menningargeiranum, ásamt því að fara yfir fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2026.