Úkraínskur ráðherra sérstakur gestur á óformlegum fundi norrænna og baltneskra ráðherra menningarmála
Frá vinstri, fremri röð: Eirikur í Jákupsstovu, Agnese Lāce, Parisa Liljestrand, Mykola Totjytskí, Mari-Leena Talvitie
Mari-Leena Talvitie, rannsóknar- og menningarmálaráðherra Finnlands var gestgjafi fundarins en Finnland og Álandseyjar stóðu fyrir honum í sameiningu í tengslum við formennsku sína í Norrænu ráðherranefndinni. Auk úkraínska menningarmálaráðherrans tóku einnig þátt í fundinum menningarmálaráðherrar Danmerkur (Jakob Engel-Schmidt), Íslands (Logi Einarsson), Noregs (Lubna Jaffery), Svíþjóðar (Parisa Liljestrand), Álandseyja (Annika Hambrudd), Færeyja (Eirikur í Jákupsstovu), Eistlands (Heidy Purga), Lettlands (Agnese Lāce) og Litháen (Šarūnas Birutis).
Um óformlegan fund var að ræða og voru engar formlegar ákvarðanir teknar. Tilgangurinn var þó að halda áfram þeim umræðum sem hófust á fundi menningarmálaráðherranna á síðasta ári og málþingi með sama þema í Stokkhólmi. Einnig var á dagskrá fundarins að ræða hvernig auka megi svæðisbundið samstarf norrænu og baltnesku landanna og Úkraínu þegar kemur að viðnámsþoli og verndun menningararfsins og aðgengi að honum.
Byggt á sameiginlegri yfirlýsingu
Í fyrra samþykktu norrænu og baltnesku ráherrarnir sameiginlega yfirlýsingu undir yfirskriftinni Nordic-Baltic ministerial declaration on the role of culture and cultural heritage for democratic and resilient societies. Þar fordæma ráðherrarnir hernað Rússlands gegn Úkraínu og brot Rússlands gegn fullveldi Úkraínu með því að eyðileggja og skemma menningarlega, sögulega og trúarlega staði og menningararf landsins.
Í hringborðsumræðum á fundinum fengu ráðherrarnir upplýsingar um þá alvarlegu stöðu sem uppi er í Úkraínu. Einnig gerðu ráðherrarnir grein fyrir þeim aðgerðum sem lögð er áhersla á í hverju landi til að vernda menningararfinn á krísu- eða stríðstímum og hvernig verndun menningararfsins tengist vörnum landsins.
„Svæðisbundið samstarf um verndun menningararfsins eflir bæði traust almennings og viðnámsþrótt samfélagsins. Samstarfið eflir líka lýðræði og gagnsæi í samfélögum okkar og færir íbúa svæðisins nær hver öðrum. Þess vegna er mikilvægt að efla þekkingu á menningarlegum viðbúnaði með aðgerðum þvert á fagsvið, bæði innan landanna og í samstarfi við nágranna okkar,“ segir Mari-Leena Talvitie, menningarmálaráðherra Finnlands.