Verðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í Helsingfors 1. nóvember

12.10.22 | Fréttir
Nordiska rådets prisutdelning sänds från Musikhuset i Helsingfors
Photographer
Petri Anttila / Musikhuset

Verðlaunahátíð Norðurlandaráðs verður send út beint frá Musikhuset í Helsingfors 1. nóvember

Verðlaunahafar Norðurlandaráðs verða afhjúpaðir í beinni útsendingu á verðlaunahátíð í Musikhuset í Helsingfors hinn 1. nóvember. Á hátíðinni verða verðlaunahafarnir hylltir og glæsileg atriði verða flutt. Kynnar verða Andrea Reuter og Christoffer Strandberg. Meðal þeirra sem afhenda munu verðlaunin eru tónlistarkonan og fyrrverandi verðlaunahafinn Eivør og ljóðskáldið Jenni Haukio.

Norðurlandaráð veitir ár hvert fimm verðlaun til þess að vekja athygli á bókmenntum, tungumáli, tónlist og kvikmyndum Norðurlandanna ásamt nýskapandi aðgerðum á sviði umhverfismála. Landsnefnd Finnlands í Norðurlandaráði er gestgjafi verðlaunahátíðarinnar í Helsingfors í ár en einnig verður 70 ára afmæli Norðurlandaráðs fagnað.

„Norræna menningarsamstarfið er ein af grunnstoðum norræns samstarfs. Á verðlaunahátíðinni í Helsingfors hyllum við norræna menningargeirann fyrir ómetanlegt framlag á sviði bókmennta, kvikmynda og tónlistar. Þá veitum við einnig verðlaun á sviði umhverfismála, sem er mjög mikilvægt nú þegar loftslagsvandinn er efst á baugi,“ segir Erkki Tuomiaoja, forseti Norðurlandaráðs.

Hver geta unnið? Hér eru tilnefningarnar!

Alls eru 50 verk og verkefni frá öllum norrænu löndunum tilnefnd til verðlauna Norðurlandaráðs 2022 á sviði umhverfismála, tónlistar, kvikmynda, bókmennta og barna- og unglingabókmennta. Á meðal tilnefninganna er að finna það besta sem Norðurlönd hafa upp á að bjóða þegar kemur að skáldsögum, ljóðasöfnum, myndabókum og unglingabókum, leiknum kvikmyndum, plötum með raftónlist, þjóðlagatónlist og listrænni tónlist, ásamt verkefnum sem leggja áherslu á náttúrumiðaðar lausnir.

 

Verðlaunahafar hljóta að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur. Þessi afhenda verðlaunin í ár:

  • Eivør Pálsdóttir, tónlistarkona sem hlaut tónlistarverðlaunin 2021, afhendir tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2022
  • Jenni Haukio, ljóðskáld og eiginkona Finnlandsforseta, afhendir bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022
  • Sophia Jansson, stjórnarformaður Moomin Characters Oy Ltd., afhendir barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022
  • Petri Piirainen, framkvæmdastjóri RePacks og verðlaunahafi 2017, afhendir umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2022
  • Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, afhendir kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022

Dans, myndbandsverk og Eivør

Dagskrárgerðarkonan Andrea Reuter og leikarinn og dagskrárgerðarmaðurinn Christoffer Strandberg verða kynnar á hátíðinni þar sem einnig verður boðið upp á glæsileg norræn atriði. Meðal annars verður flutt dansverk eftir Sofiu Ruija, myndbandsverk eftir Arash Irandoust og tónlist eftir Wegelius kammarstråkar. Færeyska tónlistarkonan Eivør, sem hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2021, rekur svo endahnútinn á kvöldið.

 

„Það er algjör munaður að geta boðið öllum Norðurlandabúum upp á þetta hlaðborð norrænnar menningar og umhverfisverkefna. Það er mér og samstarfsfólki mínu heiður að hafa verið trúað fyrir því verkefni að færa Norðurlöndum þennan menningarviðburð sem einkennist af samkennd, stolti, gleði og óvæntum uppákomum! Við bjóðum ykkur innilega velkomin að taka þátt í kvöldi þar sem norrænni samstöðu verður fagnað,“ segir Johanna Stenback, framkvæmdastjóri og framleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu All Things Content. Johanna Stenback er framleiðandi á verðlaunahátíðinni í samstarfi við finnska þingið og YLE.

Bein útsending frá verðlaunahátíðinni í öllum norrænu löndunum

Bein útsending hefst frá Musikhuset í Helsingfors kl. 20.00 (að finnskum tíma / CET +1) og verður hægt að fylgjast með henni á YLE Teema / YLE Fem í öllum norrænu löndunum fimm. Einnig verður sýnt frá verðlaunahátíðinni á öðrum norrænum ríkisrásum. Sjá upplýsingar í sjónvarpsdagskrá hvers lands.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Verðlaun Norðurlandaráðs eru ein virtustu verðlaun sem veitt eru á Norðurlöndum. Bókmenntaverðlaunin, sem fagna 60 ára afmæli í ár, eru elst verðlaunanna fimm. Þau voru veitt í fyrsta sinn árið 1962. Á eftir þeim fylgdu tónlistarverðlaunin, umhverfisverðlaunin, kvikmyndaverðlaunin og barna- og unglingabókmenntaverðlaunin. Fimm dómnefndir sjá um að tilnefna verk og útnefna verðlaunahafana. Árið 2022 er afmælisár því bókmenntaverðlaunin fagna 60 ára afmæli og 20 ár eru frá því kvikmyndaverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn.

Um þing Norðurlandaráðs

Verðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í tengslum við 73. þing Norðurlandaráðs í Helsingfors. Þingið er helsti norræni stjórnarmálavettvangur ársins. Þar koma saman 87 þingmenn, forsætisráðherrarnir og utanríkisráðherrarnir ásamt ýmsum öðrum ráðherrum frá öllum Norðurlöndunum.

Fyrir fjölmiðla

Verðlaun Norðurlandaráðs 2022 verða afhent 1. nóvember klukkan 19.50 að finnskum tíma í Musikhuset í Helsingfors. Strax að athöfn lokinni verður hægt að taka myndir og viðtöl við verðlaunahafana. Eingöngu þeir blaðamenn sem skráðir eru á þing Norðurlandaráðs eiga tækifæri á að verða viðstaddir verðlaunaafhendinguna. Blaðamenn þurfa að skrá sig í síðasta lagi 28. október klukkan 14.00 (að finnskum tíma). Gilds blaðamannaskírteinis er krafist.