Fjölmiðlafólk, nú er kominn tími til að skrá sig á þing og verðlaunahátíð Norðurlandaráðs

21.09.22 | Fréttir
Finlands riksdag
Photographer
Magnus Fröderberg/Norden.org
Opnað hefur verið fyrir skráningar fjölmiðlafólks á 74. þing Norðurlandaráðs í Helsinki 31. október - 3. nóvember 2022. Fjölmiðlafólk getur skráð sig á þing og verðlaunahátíð Norðurlandaráðs gegnum hlekkinn hér að neðan.

Þingið er helsti norræni stjórnarmálavettvangur ársins. Þar koma saman 87 þingmenn, forsætisráðherrarnir og utanríkisráðherrarnir ásamt ýmsum öðrum ráðherrum frá öllum Norðurlöndunum.

Formleg setning þingsins verður þriðjudaginn 1. nóvember kl. 14.30. Sama dag verður haldinn leiðtogafundur Norðurlandaráðs og norrænu forsætisráðherranna í þingsalnum. Í ár verður Sauli Niinistö forseti Finnlands gestafyrirlesari. Hann flytur framsöguræðu sína 1. nóvember.

Allar umræður og fundir eru opnir fjölmiðlum og sömuleiðis er hægt að fylgjast með í beinni útsendingu á netinu (hlekkur hér að neðan). Forseti Norðurlandaráðs og varaforseti, forsætisráðherrarnir og utanríkisráðherrarnir halda blaðamannafund í þingvikunni. Nánari upplýsingar verða veittir því fjölmiðlafólki sem er með staðfesta skráningu á þingið.

Þingvikan hefst strax mánudaginn 31. október þegar meðal annars verða haldnir fundir í fimm flokkahópum Norðurlandaráðs. Og helgina á undan verður þing Norðurlandaráðs æskunnar.

Þinginu verður slitið fimmtudaginn 3. nóvember kl. 15.00. Á lokadegi þingsins verður kjörinn nýr forseti og varaforseti fyrir árið 2023.

Verðlaun Norðurlandaráðs verða veitt 1. nóvember

Þriðjudagskvöldið 1. nóvember kl. 19.50 (að finnskum tíma) fer fram afhending verðlauna Norðurlandaráðs í tónlistarhúsinu í Helsinki. Veitt verða verðlaun í fimm flokkum. Aðgangur er aðeins opinn fjölmiðlafólki sem er skráð á þingið. Strax að athöfn lokinni verður hægt að taka myndir og viðtöl við verðlaunahafana.

Í salnum er takmarkaður fjöldi sæta. Þess vegna er hugsanlegt að ekki sé sæti fyrir allt skráð fjölmiðlafólk. Þau sem áhuga hafa á að fylgjast með verðlaunaveitinunni eru því hvött til þess að haka í viðeigandi reit á skráningarblaðinu.

Útsending frá verðlaunaveitingunni hefst kl. 20.00 (að finnskum tíma).

Lokafrestur til að skrá sig er til 28. október

Fjölmiðlafólk og ljósmyndarar sem vilja fylgjast með þingi Norðurlandaráðs og afhendingu verðlaunanna verða að sækja um skráningu í síðasta lagi 28. október kl. 14.00 (að finnskum tíma). Krafa er gerð um gilt blaðamannaskírteini. Haldnir verða blaðamannafundir meðan á þinginu stendur. Nánari upplýsingar um þá verða veittar síðar. Skráning á þingið veitir einnig aðgang að öllum blaðamannafundum nema annað sé tekið fram.

Þar sem lokað hefur verið fyrir skráningu skal hafa samband við Matts Lindqvist ef spurningar vakna (samskiptaupplýsingar fyrir neðan):

 

Spurningum sem varða fjölmiðla skal beint til Matts Lindqvist, +46 73 855 3355, matlin@norden.org

Almennum spurningum um þingið skal beint til Mikael Carboni Kelk +45 60 39 42 57, mikake@norden.org

Spurningum um verðlaunaveitinguna skal beint til Elisabet Skylare, +45 21 71 71 27, elisky@norden.org