Endurhæfing á Álandseyjum

Á þessari síðu eru gefnar upplýsingar um þær tegundir endurhæfingar sem eru í boði fyrir einstaklinga sem hafa fasta búsetu á Álandseyjum. Meðal annars eru gefnar upplýsingar um starfsendurhæfingu, læknisfræðilega endurhæfingu, atvinnustarfsemi í endurhæfingarskyni, félagslega endurhæfingu og þjónustu við fatlaða.

Ef starfsgeta þín skerðist vegna sjúkdóms eða fötlunar gætir þú þurft á endurhæfingu að halda. Endurhæfing getur bæði hjálpað til við að meðhöndla sjúkdóm og að komast aftur á vinnumarkaðinn. Við skerta starfsgetu er endurhæfing alltaf fyrsti kosturinn. Til viðbótar við endurhæfingu hjá ýmsum stofnunum bjóða einkaaðilar einnig upp á endurhæfingu á Álandseyjum.

Nánari upplýsingar um endurhæfingu og þá fjárhagsaðstoð sem kann að vera í boði er að finna á síðunni „Endurhæfing í Finnlandi“. Þar eru meðal annars gefnar upplýsingar um sjúkradagpeninga, endurhæfingarbætur og sjúkralífeyri.

Tegundir endurhæfingar

Álandseyjar hafa lögsögu á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, sem merkir meðal annars að opinber heilbrigðisþjónusta ber ábyrgð á að bjóða upp á læknisfræðilega endurhæfingu. FPA ber ábyrgð á hlutum starfsendurhæfingar, krefjandi læknisfræðilegrar endurhæfingar, sálfræðilegrar endurhæfingar og endurhæfingar á reynslugrundvelli. Félagsþjónusta sveitarfélaganna (KST) ber meðal annars ábyrgð á atvinnustarfsemi í endurhæfingarskyni og félagslegri endurhæfingu.

Finna má nánari upplýsingar um tegundir endurhæfingar og þær stofnanir sem bjóða upp á hana í hlutunum hér að neðan.

Starfsendurhæfing

Atvinnulífeyrissjóðirnir bera ábyrgð á starfsendurhæfingu einstaklinga sem enn eru í vinnu eða hafa nýlega verið í vinnu. FPA ber ábyrgð á þeim sem ekki eiga rétt á starfsendurhæfingu samkvæmt atvinnulífeyriskerfinu eða slysa- og umferðartryggingu. Sjá nánar á vefsíðu FPA um starfsendurhæfingu.

Vinnumarkaðs- og námsþjónustustofnun Álandseyja (AMS) ber ábyrgð á endurhæfingu einstaklinga sem eru atvinnulausir eða eiga hættu á að verða atvinnulausir. Sjá nánar á vefsíðu AMS um starfsendurhæfingu

Læknisfræðileg endurhæfing

Heilbrigðisþjónusta Álandseyja (ÅHS) ber ábyrgð á læknisfræðilegri endurhæfingu. Læknisfræðileg endurhæfing er veitt í gegnum heilbrigðisþjónustuna og felur meðal annars í sér ráðgjöf, eftirlit, athuganir á fötlun, starfsgetu og endurhæfingarmöguleikum, meðferð sem bætir og heldur við hreyfigetu, hjálpartækjaþjónustu, aðlögunarþjálfun og endurhæfingartímabil. 

ÅHS býður einnig upp á dagendurhæfingu fyrir sjúklinga á vinnualdri. Endurhæfingin getur til dæmis verið í tengslum við nýlegt slys, sjúkdóm eða fötlun eða meðan á læknisfræðileg endurhæfingu stendur. Sjá nánar á vefsvæði ÅHS.

Krefjandi læknisfræðileg endurhæfing

Markmiðið með læknisfræðilegri endurhæfingu er að gera einstaklingi kleift að vinna eða sinna daglegum verkefnum þrátt fyrir sjúkdóm eða fötlun. Heilbrigðisþjónusta Álandseyja (ÅHS) ber ábyrgð á að allir sjúklingar sem eiga rétt á krefjandi læknisfræðilegri endurhæfingu í gegnum FPA fái þau gögn og stuðning sem þeir þurfa til að geta sótt um. Nánari upplýsingar um rétt á krefjandi læknisfræðilegri endurhæfingu eru á vefsvæði FPA.

Atvinnustafsemi í endurhæfingarskyni

Atvinnustarfsemi í endurhæfingarskyni er ætlað að bæta forsendur fyrir atvinnuþátttöku og lífsleikni þeirra sem eru atvinnulaus til langs tíma. Finnsk lög um atvinnustarfsemi gilda ekki á Álandseyjum. Þess í stað er atvinna veitt samkvæmt ákvæðum laga um félagsþjónustu og lögum um sérstaka umönnun sem gilda á Álandseyjum.

KST býður upp á atvinnuúrræði af ýmsu tagi fyrir fólk með fötlun, atvinnuskapandi starfsemi og dagstarfsemi að undangengnu einstaklingsbundnu mati á þörf fyrir þjónustu.

Nánari upplýsingar um tegundir atvinnuúrræða er að finna á vefsvæði KST.

Félagsleg endurhæfing

Félagsleg endurhæfing felur meðal annars í sér ráðgjöf og leiðsögn um endurhæfingu, og eftir þörfum um endurhæfingarþjónustu, þjálfun fyrir mismunandi athafnir og aðstæður daglegs lífs, hópastarf og stuðning við félagsleg samskipti og önnur úrræði sem stuðla að félagslegri endurhæfingu.

Félagsleg endurhæfing er hluti af þverfaglega endurhæfingarkerfinu og er það félagsþjónusta sveitarfélaganna (KST) sem veitir hana í samstarfi við læknisfræðilega endurhæfingu og starfsendurhæfingu. Stuðningurinn er veittur í nánu samstarfi ÅHS, AMS og FPA. 

Nánari upplýsingar um félagslega endurhæfingu er að finna á vef KST og á vefsíðu KST fyrir verkefnið „Framsteget“.

Þjónusta við fólk með fötlun

Lög um þjónustu við fólk með fötlun gilda ekki á Álandseyjum. Á vefsíðu THL um löggjöf á Álandseyjum má lesa um þá þætti í þjónustu við fólk með fötlun sem eru frábrugðnir finnskri löggjöf.

Fólk með fötlun getur fengið stuðning og hjálp í daglegu lífi frá KST, sem ber ábyrgð á félagsþjónustu og þjónustu við fatlaða á Álandseyjum. Heilbrigðisþjónusta Álandseyja (ÅHS) og FPA bjóða einnig upp á stuðning og aðstoð í ákveðnum mæli. Nánari upplýsingar um stuðning og hjálpartæki fyrir fólk með fötlun á Álandseyjum er að finna á síðu Info Norden.

Réttur til endurhæfingar

Til að eiga rétt á endurhæfingu hjá opinberri heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu Álandseyja þarftu að hafa fasta búsetu á Álandseyjum. Nánari upplýsingar er að finna á síðu Info Norden, „Réttur til heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum“.

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um endurhæfingu í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.