Fjárhagsaðstoð vegna náms á Álandseyjum
Mismunandi tegundir fjárhagsaðstoðar (studiestöd) eru í boði til að tryggja framfærslu meðan á námi stendur. Einstaklingar sem hafa fasta búsetu á Álandseyjum eiga rétt á álenskri fjárhagsaðstoð en námsmenn sem flytja til eyjanna frá öðru norrænu landi fá yfirleitt fjárhagsaðstoð frá heimalandi sínu.
Á Álandseyjum ber Miðstöð vinnumarkaðar og námsaðstoðar á Álandseyjum (AMS) ábyrgð á fjárhagsaðstoð vegna náms. Nánari upplýsingar um fjárhagsaðstoð vegna náms á Álandseyjum er að finna á vef AMS.
Tegundir fjárhagsaðstoðar vegna náms
Mismunandi tegundir fjárhagsaðstoðar eru í boði vegna náms og er sú algengasta námsstyrkur. Nánari upplýsingar fást undir fyrirsögnunum hér að neðan og á vefsíðu AMS um tegundir fjárhagsaðstoðar vegna náms.
Námsstyrkir eru algengasta fjárhagsaðstoð námsmanna og eru þeir veittir fyrir nám sem uppfyllir kröfur fjárhagsaðstoðar vegna náms eftir að grunnskóla er lokið. Það hve hár námsstyrkurinn er fer eftir aldri, hússnæðisstöðu, námshraða, menntun og tekjum.
Námið þarf að vara í að minnsta kosti átta samfelldar vikur og vera nægilega umfangsmikið hvað varðar námseiningar eða kennslustundir. Einnig eru gerðar kröfur um námsframvindu til að halda áfram að fá námsstyrki.
Námsmenn sem eru 17 ára geta sótt um viðbótarnámsstyrk sem miðast við tekjur forráðamanna. Námsstyrkur og viðbótarnámsstyrkur getur verið veittur frá og með mánuðinum sem námsmaður verður 17 ára.
Nánari upplýsingar um námsstyrki, upphæðir þeirra og viðbótarnámsstyrki fyrir 17 ára námsmenn er að finna á vef AMS.
Námsstyrkir fyrir fullorðna eru tegund námsstyrkja sem er í boði fyrir 30 ára og eldri. Styrkir geta verið hvort sem um fullt nám er að ræða eða ekki og eru þeir greiddir út í allt að 27 mánuði. Upphæðin er byggð á skattskyldum tekjum síðustu sex eða tólf mánuði fyrir námið. Hafa þarf í huga að tekjumörk eiga um námsstyrki fullorðinna og til að fá áframhaldandi stuðning þarf einnig að uppfylla kröfur um námsframvindu.
Lesa má nánar um námsstyrk fullorðinna og upphæðir hans á vefsíðu AMS um námsstyrk fullorðinna.
Einstaklingar sem eiga rétt á námsstyrk eða námsstyrk fullorðinna eiga einnig rétt á húsnæðisstyrk. Húsnæðisstyrkur er ekki skattskyldur og stendur hann straum af 80 prósent af húsnæðiskostnaði, allt að 269 evrur á mánuði.
Húsnæðisstyrkurinn er veittur fyrir þá daga sem nám er stundað og þarf námið að uppfylla kröfur um fjárhagsaðstoð vegna náms, m.a. að námið vari í átta samfelldar vikur og sé nægilega umfangsmikið.
Til að fá húsnæðisstyrk þurfa upplýsingar um húsnæðið að fylgja umsókn. Húsnæðisstyrkur er ekki veittur fyrir húsnæði í eigin eigu eða búseturétt utan Álandseyja og Finnlands. Sjá nánar á vefsíðu AMS um húsnæðisstyrk eða á síðunni Húsnæðisstyrkur á Álandseyjum.
Einstaklingar sem fá námsstyrk eða námsstyrkur fullorðinna og eru forráðamenn barns sem er yngra en 18 ára geta sótt um framfærslustyrk. Fjárhagsaðstoð er veitt fyrir þá daga sem nám er stundað innan mánaðar sem námsaðstoð er eitt. Ef nám fer aðeins fram hluta úr mánuði er aðstoð einungis veitt fyrir námsdagana, að því tilskildu að umfang námsins í heild sé nægilegt. Nánari upplýsingar um framfærslustyrk og núverandi upphæð hans er að finna á vefsíðu AMS.
Námslán er ekki styrkur heldur bankalán sem þarf að greiða upp. Til að fá námslán er fyrst sótt um ábyrgð hjá AMS. Landsstjórn Álandseyja er þá ábyrgðaraðili og yfirleitt er ekki þörf á annarri tryggingu. Þegar sótt hefur verið um ábyrgð er hægt að sækja um lánið hjá samþykktum banka. Endurgreiðslur og vextir eru samkvæmt samkomulagi við bankann.
Lesa má nánar um upphæðir námslána, tekjumörk, viðbótarlán, vexti og vaxtabætur og endurgreiðslur vefsíðu AMS um námslán
Hámarkslengd fjárhagsaðstoðar vegna náms
Fjárhagsaðstoð er almennt veitt í allt að 55 mánuði fyrir háskólanám. Í sumum tilfellum er hægt að sækja um lengri námstíma vegna aðstæðna. Námsstyrkir fyrir fullorðna eru veittir í allt að 27 mánuði.
Fyrir annað nám, svo sem framhaldsskóla-, lýðháskóla og tækniskólanám er fjárhagsaðstoð veitt í allt að 36 mánuði frá og með þeim mánuði þegar námsmaður verður 20 ára. Fyrir slíkt nám eru námsmánuðir fyrir 20 ára aldur ekki taldir með. Nánari upplýsingar um hámarksfjölda mánaða sem fjárhagsaðstoð er veitt vegna náms er að vinna á vefsíðu AMS.
Réttur til fjárhagsaðstoðar vegna náms
Einstaklingar sem hafa fasta búsetu á Álandseyjum eiga rétt á fjárhagsaðstoð vegna náms frá AMS. Námsmenn sem flytja til Álandseyja frá öðru norrænu landi fá alla jafna fjárhagsaðstoð frá heimalandi sínu. Einstaklingar sem flytja til Álandseyja frá norrænu landi eða ESB-/EES-ríki þurfa yfirleitt að hafa búið á Álandseyjum í a.m.k. sex af síðustu tólf mánuðum áður en námið hefst til að eiga rétt á fjárhagsaðstoð vegna náms. Flutningurinn þarf að hafa verið af annarri ástæðu en vegna náms. ESB-ríkisborgarar þurfa auk þess að hafa gilda ESB-skráningu.
Einstaklingar sem flytja til Álandseyja frá landi utan Norðurlanda og ESB/EES þurfa að hafa samfellt eða ótímabundið dvalarleyfi eða ESB-dvalarleyfi til að geta fengið fjárhagsaðstoð vegna náms frá AMS. Sjá nánar á vefsíðu AMS um rétt til fjárhagsaðstoðar vegna náms á Álandseyjum.
Útilokandi bætur
Sumar bætur flokkast sem „útlokandi bætur“ og geta því ekki fengist greiddar á sama tíma og fjárhagsaðstoð vegna náms. Þetta á til dæmis við um sjúkradagpeninga, atvinnuleysisbætur, endurhæfingarstyrk og fleira. Barnabætur og örorkubætur hafa þó ekki áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar vegna náms. Nánari upplýsingar um algengustu útilokandi bætur og aðrar mikilvægar upplýsingar er að finna á vefsíðu AMS.
Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna náms
Þegar inntaka í nám hefur verið staðfest er hægt að sækja um fjárhagsaðstoð vegna náms með rafrænni þjónustu AMS og stafrænu námsmannagáttinni Stuart eða með pappírseyðublaði. Skráð er inn í rafrænu þjónustuna með rafrænum skilríkjum og geta forráðamenn einnig sótt um fjárhagsaðstoð fyrir börn undir lögaldri sem eru til dæmis ekki með bankakóða.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um fjárhagsaðstoð vegna náms í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.