Háskólanám á Álandseyjum
Álandseyjar hafa eigið löggjafarvald á sviði menntunar og kennslu og er fagháskólanám sem byggir á framhaldsskólamenntun í boði við Háskólann á Álandseyjum. Í fagháskólum er námið skipulagt í samræmi við þarfir atvinnulífsins og er oft um hagnýta menntun að ræða.
Nám við fagháskóla sem leiðir til námgráðu er ókeypis fyrir ríkisborgara ESB-/EES-landa og Sviss. Ríkisborgarar annarra landa gætu þurft að greiða skólagjald fyrir hvert skólaár.
Háskólinn á Álandseyjum
Háskólinn á Álandseyjum er eini háskólinn á Álandseyjum og býður hann upp á bakkalár- og meistaranám á sænsku og ensku, meðal annars á sviði tækni, siglinga, heilbrigðisvísinda, viðskiptafræði og ferðaþjónustu. Námið sameinar fræði og starfsnám og er prófgráðan jafngild samsvarandi fagháskólagráðu í Finnlandi.
Lesa má nánar um Háskólann á Álandseyjum og námið á vefsvæði hans og undir fyrirsögnunum hér að neðan.
Háskólinn á Álandseyjum býður upp á tíu námsbrautir á bakkalárstigi sem sameina fræðilegt og hagnýtt nám. Þær eru á milli 3,5 og 4,5 árs langar og samanstanda af alls 210 til 270 námseiningum (studiepoäng, sp):
- Orka, hönnun og sjálfvirkni
- Viðskiptafræði
- Viðskiptafræði (fjarnám)
- Ferðaþjónusta og stjórnun
- Upplýsingatæknifræði
- Kerfisfræði
- Sjávarverkfræði
- Hjúkrunarfræði
- Hjúkrunarfræði (fjarnám)
- Skipstjórnun
Nánari upplýsingar um viðfangsefni námsbrautanna er að finna á vefsvæði Háskólans á Álandseyjum.
Háskólinn á Álandseyjum býður upp á meistaranámið Energy Automation Sustainable Engineering, sem er framhaldsnám í verkfræði á sviði orkusjálfvirkni og sjálfbærni. Um eins náms ár er að ræða (60 námseiningar) og kennslan fer fram á ensku. Lesa má nánar um námið og umsóknarferlið á vefsíðu námsbrautarinnar.
Umsókn um háskólanám
Sótt er um nám við Háskólann á Álandseyjum á vorin. Til að fá inngöngu í nám þarf að uppfylla almenn inntökuskilyrði, sem fela í sér að umsækjandi þarf að hafa eitt af eftirfarandi:
- Framhaldsskóla- eða stúdentspróf eftir a.m.k. þriggja ára framhaldsskólanám
- Prófgráðu úr verknámi (120 námseiningar)
- Samsvarandi menntun
Fyrir sumar námsbrautir eru gerðar sérstakar kröfur til viðbótar við almennu inntökuskilyrðin. Háskólinn getur einnig tekin inn umsækjendur sem uppfylla ekki skilyrðin en sem teljast hafa nægilega þekkingu og færni fyrir háskólamat.
Inntökuferlið við Háskólann á Álandseyjum er frábrugðin því í t.a.m. Svíþjóð og Finnlandi. Engar kröfur eru gerðar um lágmarkseinkunn heldur eru þeir umsækjendur sem hafa hæstu einkunn og uppfylla inntökuskilyrði teknir inn. Ákveðið er árlega hve margir nemendur eru teknir inn. Finna má nánari upplýsingar um útreikning einkunna, inntökuskilyrði einstakra námsleiða, inntökupróf og tungumálakröfur á vefsíðunni Umsóknir.
Samningur Norðurlanda um aðgang að æðri menntun tryggir öllum Norðurlandabúum rétt til að sækja um nám í opinberum háskóla í öðru norrænu landi samkvæmt sömu eða sambærilegum skilyrðum og íbúar viðkomandi lands. Finna má nánari upplýsingar á síðunni „Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um aðgang að æðri menntun“.
Skiptinám og starfsnám
Háskólinn á Álandseyjum á í samstarfi með öðrum háskólum á Norðurlöndum og í Evrópu og tekur þátt í skiptiáætlununum Erasmus+ og Nordplus. Nemendur geta lokið hluta náms eða starfsnáms sem skiptinemar í öðru landi. Nánari upplýsingar um nám og starfsnám erlendis er að finna á vefsíðu háskólans um skiptinám og starfsnám.
Ef þú vilt fara í skiptinám í Háskólanum á Álandseyjum þarf skólinn þinn að bjóða upp á skipti við hann.
Einkunnir á háskólastigi
Einkunnavarðar á Álandseyjum eru mismunandi eftir því hvort námið er á grunnskóla-, framhaldsskóla- eða fagháskólastigi. Á síðunni „Einkunnakvarðar á Álandseyjum“ eru gefnar upplýsingar um einkunnavarða Háskólans á Álandseyjum og umreikning einkunna fyrir nám á Álandseyjum.
Viðurkenning prófgráða
Yfirleitt er það móttökuskólinn sem metur stig erlendu prófgráðunnar og umfang námsins. Háskólinn á Álandseyjum tekur sjálfur ákvörðun um hvort nemandi geti fengið nám erlendis metið sem hluta af prófgráðu. Norræni samningurinn um aðgang að æðri menntun og Reykjavíkuryfirlýsingin um gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina á háskólastigi eiga hins vegar að tryggja að æðri menntun frá einu norrænu landi verði að jafnaði viðurkennd í hinum norrænu löndunum.
Upplýsingar um viðurkenningu starfsréttinda og rétt til að starfa innan atvinnugreinar er að finna á síðunni um starfsleyfi og viðurkenningu erlendrar menntunar á Álandseyjum.
Sjálfstæð námskeið við Opna háskólann
Opni háskólinn býður upp á háskólanámskeið, símenntun og opna fyrirlestra. Umsóknir eru samþykktar í tímaröð og öllum er frjálst að sækja námskeiðin óháð fyrra námi eða starfsreynslu. Fyrir sum námskeið gilda forkröfur og námsskeiðsgjöld sem koma fram í lýsingu námskeiðsins.
Námsmenn geta setjið námskeið og safna einingum án þess að vera skráðir á námsbraut. Einingarnar geta fengist skráðar við þann háskóla þar sem námið fer fram eða fengist metnar síðar í áframhaldandi námi. Finna má upplýsingar um námsframboð og aðrar upplýsingar á vef Opna háskólans.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um háskólanám í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.