Kennitala á Álandseyjum
Kennitala meðal annars nauðsynleg til að geta auðkennt sig hjá stofnunum, fengið greidd laun og sótt um bætur. Málefni íbúa Álandseyja, svo sem umsóknir um finnska kennitölu og skráning í þjóðskrá, eru afgreidd af skráningaryfirvöldum svæðisskrifstofu Álandseyja.
Á Álandseyjum gilda sömu reglur og í Finnlandi. Á síðunni „Kennitala í Finnlandi“ eru gefnar upplýsingar um hvers vegna þarf að nota kennitölu og hvernig sótt er um að fá kennitölu. Upplýsingar um skráningu í þjóðskrá og hvað felst í því er að finna á síðunni „Skráning í þjóðskrá á Álandseyjum“.
Sækja um kennitölu
Við flutning til Álandseyja frá norrænu landi til að hafa þar fasta búsetu er hægt að fá finnska kennitölu og skráningu í þjóðskrá þegar flutningurinn hefur verið tilkynntur til skráningaryfirvalda á svæðisskrifstofu Álandseyja í Maríuhöfn. Flutningurinn skal tilkynntur í eigin persónu og framvísa þarf gildum persónuskilríkjum. Lesa má nánar um kennitölu og skráningu í þjóðskrá á vef svæðisskrifstofu Álandseyja.
Ef þú ert ekki ríkisborgari norræns lands þarftu skráningarvottorð fyrir dvalarleyfi ríkisborgara í Evrópusambandinu, dvalarleyfiskort eða aðra staðfestingu á að þú dveljir löglega í Finnlandi til að geta sótt um kennitölu. Sænska innflytjendastofnunin (Migrationsverket) hefur umsjón með slíkum málum. Lesa má nánar um þjónustu innflytjendastofnunarinnar á Álandseyjum á síðunni „Atvinnu- og dvalarleyfi á Álandseyjum“.
Kennitala vegna vinnu eða náms
Við tímabundna dvöl þarf gilda ástæðu til að fá kennitölu, sem getur til dæmis verið vinna eða nám. Sótt er um skattatengda kennitölu hjá skattyfirvöldum og bóka þarf tíma í eigin persónu hjá skattstofu Álandseyja. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu skattyfirvalda.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um kennitölur í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.