Samstarfsáætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar 2025–2030

30.10.24 | Fréttir
Ljósmyndari
mag
Norðurlönd standa frammi fyrir ýmsum áskorunum, landpólitísk spenna ríkir í nágrenni okkar, loftslagið, líffræðileg fjölbreytni og umhverfið eiga undir högg að sækja og hin stafræna bylting, hækkandi meðalaldur og vanlíðan ungs fólks kalla á náið samtarf. Við þurfum að leysa stór samfélagsvandamál í sameiningu. Norræna ráðherranefndin er öflugur vettvangur í þessari vinnu.

Þetta eru óvissutímar fyrir Norðurlönd og alla heimsbyggðina. Loftlagsbreytingar eru eiga sér stað, stríð geisar í nágrenni okkar og velferðarkerfi og lýðræðisgildi eiga undir högg að sækja. Þetta eru þó aðeins nokkrar áskorananna. Einstök lönd geta ekki leyst þær á eigin spýtur – til þess þarf einnig samvinnu og heildstæða nálgun. Það er útgangspunkturinn í 14 nýjum samstarfsáætlunum sem munu varða veginn í samstarfi ríkisstjórnanna í Norrænu ráðherranefndinni til ársins 2030.

 

Skýrar áherslur og markvissar aðgerðir

„Samstarfsáætlanirnar skerpa á áherslunum er við vinnum að því að ná markmiðum ríkisstjórnanna og þar með uppfylla framtíðarsýnina. Með skýrum áherslum og markvissum aðgerðum munum við stuðla að því að stórar samfélagslegar áskoranir verði leystar,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Saman stuðla áætlanirnar að hinum þremur stefnumarkandi áherslusviðum Framtíðarsýnar okkar 2030: Grænum Norðurlöndum, samkeppnishæfum Norðurlöndum og félagslega sjálfbærum Norðurlöndum.