Menntun á Norðurlöndum
Norræna ráðherranefndin leggur mikla áherslu á menntun og samstarfið nær til menntavegarins í heild sinni, allt frá leikskóla til æðri menntunar og símenntunar.
Þrátt fyrir að menntakerfin á Norðurlöndum séu fyrst og fremst landsbundin eru þau þróuð með nánu samstarfi með kerfisbundinni miðlun á þekkingu og reynslu. Hér má lesa nánar um helstu áherslusvið norræna samstarfsins í menntamálum.
15 áherslusvið sem hafa áhrif á menntamál á Norðurlöndum
LEIKSKÓLI
- Gegnir mikilvægu hlutverki við að draga úr félagslegum mismun – öll börn eiga að hafa aðgang að inngildandi og vandaðri menntun snemma á ævinni.
- Gæði – öll börn eiga að fá öruggt og örvandi námsumhverfi á jafnréttisgrundvelli með áhugasömum og vel menntuðum kennurum sem styðja við þroska þeirra, nám og velferð á hverjum degi.
- Velferð – öll börn eiga að upplifa að þau séu örugg og velkomin í jákvæðu umhverfi þar sem þau dafna, þroskast og þora að leika og læra með öðrum.
GRUNNSKÓLI
- Grunnfærni – versnandi námsárangur í lestri, ritun og stærðfræði er sameiginleg áskorun Norðurlandanna. Því er mikilvægt að bæta þessa færni.
- Velferð og stafræn umskipti – hvernig skólinn getur fyrirbyggt áskoranir og aukið stafræna færni nemenda með stuðningi.
- Lýðræði til að móta virka samfélagsþegna – skólinn á að gefa börnum og ungmennum þekkingu, færni og gildi sem gera þeim kleift að taka virkan þátt í lýðræðinu með gagnrýnum hætti.
FRAMHALDSSKÓLI
- Velferð og stuðningur í námi – gott námsumhverfi, náin eftirfylgni og góð námsráðgjöf ætti að stuðla að því að fleiri ljúki námi, einnig ungt fólk sem hætt er við að detti úr námi og vinnu.
- Menntun sem mætir þörfum samfélagsins – framboðið er þróað í takt við þarfir atvinnulífsins, meðal annars með því að auka áhuga á iðngreinum og fagsviðum þar sem skortur er á faglærðu fólki.
- Hreyfanleiki og frjáls för á Norðurlöndum – framhaldsskólanám ætti að efla þekkingu og reynslu ungs fólks af Norðurlöndum. Ungmenni eiga að geta flutt sig milli skóla og landa á Norðurlöndum til að stunda nám.
HÁSKÓLI
- Hreyfanleiki – það er pólitískt forgangsmál að auðvelda námsmönnum að ljúka öllu námi sínu eða hluta þess í öðru norrænu landi.
- Miðlun reynslu á Norðurlöndum – menntastofnanir deila reynslu sinni með umræðum um málefni á borð við frelsi í fræðastarfi, áhrif gervigreindar og ábyrgt alþjóðlegt samstarf.
- Sameiginlegar áskoranir – meðal annars með því að laða að og halda í nemendur í skólum utan stóru borganna.
SÍMENNTUN
- Símenntun fyrir alla – á Norðurlöndum eiga fullorðnir einstaklingar að hafa tækifæri til að þróast og tileinka sér nýja færni alla ævi.
- Umskipti í atvinnulífinu – námsframboð skal þróað í samstarfi við atvinnulífið og vera sveigjanlegt, meðal annars með námi á vinnustað.
- Færni fyrir framtíðina og inngilding – nám fullorðinna á að styðja við græn og starfræn umskipti vinnumarkaðarins. Um leið ætti það að vinna gegn útilokun og efla grunngetu og stafræna færni til að allir geti tekið þátt í samfélaginu og atvinnulífinu.
Menntun, rannsóknir og tungumál eru nauðsynleg til að bregðast við áskorunum samfélagsins, en áskoranirnar verða ekki leystar af hverju landi fyrir sig.
Nánari upplýsingar
Leikskólar gegna lykilhlutverki í norrænu löndunum og eru mikilvægur hlut af þroska barna og velferðarkerfi samfélagsins.
Leikskólarnir eru einnig mikilvægur vettvangur félagslegar aðlögunar. Þar kynnast börn af ólíkum uppruna, sem eykur félagslega samheldni. Fyrir börn innflytjenda eru leikskólar oft lykillinn að því að læra tungumálið og skilja venjur og gildi samfélagsins.
Leikskólar á Norðurlöndum eru burðarstoð velferðarkerfisins og sérstaklega mikilvægir fyrir þroska einstaklinga, lífskjör fjölskyldna og sjálfbærni samfélagsins til langs tíma.
Í norrænu leikskólasamstarfi er meðal annars lögð áhersla á gæði, inngildingu og velferð.
Nánari upplýsingar:
AÐGERÐ: Skandinavísk rannsókn á framboð dagvistunar (Nordic Database on ECEC)
AÐGERÐ: Rannsóknarverkefni um leikskóla sem fjárfestingu í framtíðinni (2024)
Grunnmenntun á Norðurlöndum einkennist af traustum gildum, gæðum og inngildandi nálgun. Kerfin eru byggð á jafnrétti, aðgengi og hagsmunum barna.
Kennararnir eru vel menntaðir og njóta góðra kjara, sem stuðlar að faglegri kennslu og stöðugleika í skólum.
Inngilding er lykilstyrkleiki. Norrænir skólar vinna með virkum hætti að því að mæta ólíkum þörfum nemenda og veita stuðning með heilbrigðisáætlunum, sérkennslu og öðrum úrræðum.
Opinber fjármögnun og landsbundnar námsáætlanir setja skýr markmið og tryggja sameiginlegt gæðastig.
Lýðræðisfræðsla er mikilvæg. Nemendur eru hvattir til að koma að ákvörðunum sem varða þá, sem eykur ábyrgðartilfinningu þeirra og tækifæri til þátttöku.
Í norrænu samstarfi er meðal annars lögð áhersla á grunnfærni, velferð, lýðræði, stafræn umskipti og menntun sem aðlöguð er að jaðarsettum börnum og ungmennum.
Nánari upplýsingar:
ÁÆTLUN: Nordplus Junior
SAMSTARFSNET: DIS-samstarfsnet (demokrati, inkludering og sammenhengskraft, eða lýðræði, inngilding og sameiningarafl) Norrænu ráðherranefndarinnar um menntamál og rannsóknir er skipað sérfræðingum frá Norðurlöndunum. Samstarfsnetið fékk nýtt starfsumboð árið 2025. Í skýrslu DIS frá árinu 2024 er gefið yfirlit yfir vinnu samstarfsnetsins að því að efla lýðræði í skólum á Norðurlöndum.
AÐGERÐ: Northern lights on Civic and Citizenship Education
AÐGERÐ: Participation is protection – embedding children’s rights in Nordic crisis governance Skýrsla á ensku frá Norrænu velferðarmiðstöðinni um hvernig Norðurlöndin – bæði hvert þeirra og í sameiningu – geta aukið rétt barna til þátttöku.
AÐGERÐ: Aðgerðir NordForsk fyrir börn og ungmenni á Norðurlöndum eftir heimsfaraldurinn.
Framhaldsskólanám á Norðurlöndum er byggt á jöfnum tækifærum, fjölbreyttu námsframboði og rými fyrir bæði persónulega og faglega þróun. Góð líðan og gott námsumhverfi eru lykilatriði til að nemendur geti lokið námi og þróað með sér þá færni sem þarf fyrir frekara nám eða vinnu.
Í norræna samstarfinu er lögð sérstök áhersla á velferð og framkvæmd, sérstaklega meðal ungmenna í NEET-hópnum (Not in Education, Employment or Training). Verkefnið Futureproofing VET in the Nordics hefur varpað ljósi á hvað það er sem hefur áhrif á námsval ungmenna og til hvaða aðgerða má grípa til að þau ljúki við starfsmenntun.
Góð leiðsögn hjálpar ungmennum að taka upplýstar ákvarðanir á námsferlinum. Norrænt samstarf greiðir fyrir þekkingarmiðlun og tengslamyndun milli kennslustofnana og menntagátta á Norðurlöndum.
Í norrænu samstarfi um menntamál er einnig lögð áhersla á að aðlaga námsframboð að þörfum vinnumarkaðarins, sérstaklega á sviðum þar sem skortur er á vinnuafli, svo sem í vísindum og tækni (STEM).
Samningurinn um norrænt menntasamfélag á framhaldsskólastigi tók gildi árið 2008 og markmið hans er að auka hreyfanleika og samstarf á Norðurlöndum. Með honum gefst námsmönnum tækifæri til að sækja um inngöngu í framhaldsskóla í öðru norrænu landi með sömu skilyrðum og íbúar landsins.
Nánari upplýsingar:
SAMNINGUR: Framhaldsskólasamningurinn frá árinu 2024 (bóklegt nám og starfsmenntun)
ÁÆTLUN: Nordplus Junior
AÐGERÐ: Futureproofing VET in the Nordics
AÐGERÐ: NLL NEET (Færeyjar, Álandseyjar og Grænland)
Það er pólitískt forgangsmál að auðvelda námsmönnum að ljúka öllu námi sínu eða hluta þess í öðru norrænu landi. Þess vegna eiga norrænu löndin náið samstarf um gagnkvæma viðurkenningu náms og starfsmenntunar á öllum stigum og styðja við samstarf milli leiðsagnar- og menntagátta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Árið 2022 undirrituðu norrænu ráðherrarnir Reykjavíkuryfirlýsinguna um sjálfvirka viðurkenningu menntunar á háskólastigi.
Mikil líkindi eru milli norrænu landanna hvað varðar skipulagningu og framkvæmd menntunar á háskólastigi, sem og þær áskoranir sem eru til staðar. Norræna samstarfið er því einnig mikilvægt til að miðla reynslu á þessu sviði og gera kleift að eiga nánara samstarf á mörgum sviðum sem getur eflt Norðurlönd sem svæði. Norrænir hagsmunaaðilar á sviði náms á háskólastigi eru meðal annars Nordisk universitetssamarbeid (NUS), Nordic Five Tech og NORDTEK.
SAMNINGUR: Samningur um aðgang að æðri menntun
SAMNINGUR: Reykjavíkuryfirlýsingin
ÁÆTLUN: Norplus á háskólastigi
SAMSTARFSNET: Norræna samstarfsnetið um viðurkenningu menntunar (NORRIC)
AÐGERÐ: Auglýsing (NordForsk) Nordic-Baltic education systems and 21st century challenges
AÐGERÐ: Higher Education beyond major urban areas in the Nordics
Símenntun hefur mikið norrænt notagildi og er mikilvægt markmið samstarfsins á Norðurlöndum. Markmiðið er að gefa fullorðnum einstaklingum tækifæri til að nýta tækifæri sín og öðlast færni sem skortur er á í ört breytilegu atvinnulífi.
Vinnan nýtur sérstaks stuðnings Nordplus Voksen, sem stuðlar að samstarfi milli aðila á sviði menntunar á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum, og Norræna tengslanetsins um fullorðinsfræðslu, sem þróar stefnu og starfsaðferðir. Norræna tengslanetið um fullorðinsfræðslu styður við fullorðinsfræðslu með símenntun og framhaldsmenntun, mati á raunfærni, grunnfærni með PIAAC-samstarfsnetinu, stafrænni inngildingu og sveigjanlegri hæfniþróun í atvinnulífinu.
Frumkvæði Norrænu ráðherranefndarinnar, „Færni til framtíðar“ leggur til greiningar á þeim kröfum sem græn og stafræn umskipti, lýðfræði og alþjóðleg samkeppni gera til vinnuaflsins. Með verkefninu „Futureproofing VET in the Nordics“ er sjónum einnig beint að skorti á faglærðu vinnuafli og hvernig hvetja megi fleiri ungmenni til að velja starfsmenntun og leggja sitt af mörkum til grænna umskipta.
Hér má finna yfirlit yfir áætlanir, samstarfsnet og aðgerðir á þessu sviði:
ÁÆTLUN: Nordplus Voksen
ÁÆTLUN: Norræna tengslanetið um símenntun
SAMSTARFSNET: Norræna-baltneska samstarfsnetið PIAAC
AÐGERÐ: Færni framtíðarinnar
Gagnlegir tenglar
Nordplus: Stuðningur við samstarf í menntamálum á Norðurlöndum. Stærsta menntaáætlun Norðurlanda sem veitir styrki til hreyfanleika, tengslaneta og verkefna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum – frá leikskóla til háskólastigs.
Info Norden – við hjálpum þér að flytja, starfa eða stunda nám á Norðurlöndum. Þú finnur upplýsingar um menntakerfi, námsstyrki, inntöku í nám og umreikning einkunna hjá Info Norden.
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK)
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) er ráðgjafar- og samhæfingaraðili Norrænu ráðherranefndarinnar varðandi málefni barna og ungmenna.