Upplýsingaþjónustur um frjálsa för á Norðurlöndum

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar Info Norden og þrjár upplýsingaþjónustur landamærasvæðanna, Grensetjänsten Norge-Sverige, Gränstjänsten Sverige-Finland-Norge og Øresunddirekt, eru sérstaklega mikilvægar fyrir norrænt samstarf um frjálsa för og eru fjármagnaðar í mismunandi mæli af Norrænu ráðherranefndinni.

Upplýsingarþjónusturnar veita aðstoð og upplýsingar og skapa öryggi fyrir íbúa og fyrirtæki sem vilja ferðast innan Norðurlanda og þurfa að fá hjálp við að finna upplýsingar um reglur og að hafa samband við yfirvöld á Norðurlöndum. Þjónusturnar stuðla að hreyfanleika með upplýsandi vefsíðum, persónulegri aðstoð og kynningarstarfi. Með daglegum samskiptum þeirra við íbúa eru upplýsingaþjónusturnar einnig fyrsti staðurinn þar sem mögulegar stjórnsýsluhindranir eru greindar, þar sem þær greina stöðugt þær áskoranir og mögulegu hindranir sem Norðurlandbúar standa frammi fyrir þegar þeir nýta rétt sinn til frjálsrar farar.

Info Norden

Info Norden er stafræn upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Þjónusturnar eru reknar af átta starfsmönnum sem starfa við norrænar stofnanir Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum og eru þær hluti af skrifstofu áætlunar um frjálsa för.

Info Norden miðar þjónustu sína að einstaklingum og gefur þeim leiðbeiningar um störf, flutninga, nám og stofnun og rekstur fyrirtækja á Norðurlöndum. Info Norden reynir að gefa notendum svör við helstu spurningum á vefsíðum sínum, sem eru í boði á opinberum tungumálum Norðurlandanna og ensku. Persónuleg samskipti við íbúa fara fyrst og fremst fram með vefeyðublöðum. Info Norden á í reglulegum samskiptum við stofnanir, ráðuneyti, sendiráð og aðra aðila til að efla frjálsa för á Norðurlöndum.

Norsk-sænska landamæraþjónustan

Norsk-sænska landamæraþjónustan er upplýsingaþjónusta sem veitir einstaklingum og fyrirtækjum upplýsingar um flutninga, vinnu, nám og stofnun fyrirtækja milli Noregs og Svíþjóðar. Þjónustan er staðsett í upplýsingamiðstöðinni í Morukulien, í miðju landamæra Svíþjóðar og Noregs.Vefsíða landamæraþjónustunnar inniheldur upplýsingar á tveimur tungumálum; á norsku um aðstæður í Svíþjóð og sænsku um aðstæður í Noregi. Íbúar og fyrirtæki geta fengið svör við spurningum á vefsíðunni og einnig persónulega leiðsögn hjá upplýsingamiðstöðinni. Landamæraþjónustan heldur út tveimur einföldunarhópum einstaklinga og aðila atvinnulífsins. Í þeim er tekist á við mögulegar stjórnsýsluhindranir og áskoranir varðandi hreyfanleika sem draga má úr með samstarfi við yfirvöld og einföldun.

Sænsk-finnsk-norska landamæraþjónustan

Sænsk-finnsk-norska landamæraþjónustan er upplýsingaþjónusta sem veitir einstaklingum og fyrirtækjum upplýsingar um flutninga, vinnu, nám og stofnun fyrirtækja milli Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Upplýsingaþjónustan er með þrjár skrifstofur, eina í Torneå/Haparanda í Svíþjóð/Finnlandi, eina í Skibotn, Storfjord í Noregi og eina í i Alta, Noregi. Vefsíða landamæraþjónustu Svíþjóðar, Finnlands og Noregs er ætluð bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Á henni má finna upplýsingar á finnsku, norsku og sænsku. Íbúar og fyrirtæki geta fengið svör við spurningum á vefsíðunni, með spjallmenni og geta einnig fengið persónulega leiðsögn hjá upplýsingaskrifstofunum.

Øresunddirekt

Landamæraþjónustan Øresunddirekt er upplýsingaþjónusta sem veitir einstaklingum og fyrirtækjum upplýsingar um flutninga, vinnu, nám og stofnun fyrirtækja milli Danmerkur og Svíþjóðar. Undir Øresunddirekt heyrir upplýsingamiðstöð í Malmö – Øresunddirekt Sverige – og vefritstjórn sem staðsett er í Kaupmannahöfn – Øresunddirekt Danmark. Þessi fyrirtæki hafa sama vörumerki en skipulagslega séð eru þau aðskilin og hafa að hluta til mismunandi fjármögnunaraðila. Vefsíður Øresunddirekt eru ætlaðar bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Vefsíðurnar innihalda upplýsingar á tveimur tungumálum; á sænsku um aðstæður í Danmörku og á dönsku um aðstæður í Svíþjóð. Vefsíðan fyrir einstaklinga er einnig á ensku. Íbúar og fyrirtæki geta fengið svör við spurningum á vefsíðunni og einnig persónulega leiðsögn hjá upplýsingamiðstöðinni.