Íslenska kvikmyndin „Dýrið“ hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022

01.11.22 | Fréttir
Lamb, winner of Nordic Council Filmprize 2022
Photographer
Magnus Fröderberg, norden.org
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022 hlýtur íslenska kvikmyndin Dýrið eftir leikstjórann og handritshöfundinn Valdimar Jóhannsson, handritshöfundinn Sjón og framleiðendurna Hrönn Kristinsdóttur og Söru Nassim. Verðlaunin hljóta þau fyrir verk sem dómnefndin kallar einstaka frásögn um missi, sorg og hrylling.

Verðaunin voru afhent á þriðjudagskvöld í Helsinki í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafarnir tóku við verðlaununum úr hendi Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands.

 

Handhafar kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs fá verðlaunagripinn Norðurljós og verðlaunafé sem nemur 300 þúsund dönskum krónum og skipta handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi upphæðinni á milli sín, en það á að undirstrika að kvikmyndagerð sem listgrein er afurð náins samstarfs þessara aðila.

 

Dýrið skartar meðal annars Noomi Rapace og Hilmi Snæ Guðnasyni í aðalhlutverkum. Handritið skrifuðu rithöfundurinn Sjón og Valdimar Jóhannsson, sem leikstýrir einnig myndinni. Dýrið var heimsfrumsýnd á Cannes 2021 í flokknum Un Certain Regard, þar sem hún vann til verðlauna sem frumlegasta myndin.

Rökstuðningur dómnefndar

Í Dýrinu skapar Valdimar Jóhannsson einstaka frásögn um missi, sorg og hrylling. Þessi afar frumlega saga tekst á við sígild viðfangsefni um samskipti manns og náttúru og þær afleiðingar sem það getur haft að ögra þeim krafti sem í henni býr.Hún fjallar líka um þá fegurð og grimmd sem felst í foreldrahlutverkinu og hvernig við erum reiðubúin að grípa til örþrifaráða til að verja þá hamingju sem okkur finnst við eiga tilkall til.

 

Upplifunin af kvikmyndinni er í senn truflandi og sérstæð. Næmni dýra fyrir jafnvel smæstu frávikum í umhverfinu er notuð með afar áhrifaríkum hætti til að skapa andrúmsloft undirliggjandi ógnar. Þetta er undirstrikað á meistaralegan hátt með gaumgæfinni kvikmyndatöku og uggvekjandi hljóðheimi.

 

Hárbeitt notkun á fáum en merkingarþrungnum þáttum skapar andrúmsloft yfirvofandi hættu, svo úr verður ágeng stemning og áhrifamikil kvikmyndagerð.

 

Dýrið er tilkomumikil frumraun Valdimars Jóhannssonar leikstjóra.

Titill á frummáli: Dýrið

Titill á ensku: Lamb

Leikstjóri: Valdimar Jóhannsson

Handritshöfundar: Sjón og Valdimar Jóhannsson

Framleiðendur: Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim

 

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Verðlaunahafar fá verðlaunastyttuna Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur við verðlaunaathöfn sem haldin er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.

Winner speech for Dýrið (Lamb), by Valdimar Jóhannsson, Sjón, Hrönn Kristinsdóttir and Sara Nassim, the winners of the 2022 Nordic Council Film Prize. The winner was presented by Sanna Marin, Prime Minister of Finland.