Jakob Oftebro verður kynnir á verðlaunahátíð Norðurlandaráðs

29.10.21 | Fréttir
Jakob Oftebro
Photographer
Hein Photography
Hinn vinsæli leikari og þáttastjórnandi Jakob Oftebro verður kynnir þegar verðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókmenntir, barna- og unglingabókmennir, tónlist, kvikmyndir og umhverfismál verða veitt 2. nóvember.

Verðlaunahátíðin fer fram í Skuespilhus Konunglega leikshússins og Oftebro sem er frá Noregi en búsettur í Kaupmannahöfn hlakkar til að taka þátt í hátíðinni ásamt kóngafólki, tilnefndum og stjórnmálafólki frá öllum Norðurlöndum.

„Ég hlakka til að taka þátt í veitingu verðlauna Norðurlandaráðs í annarri heimaborg minni, Kaupmannahöfn. Verðlaunahátíðin er einstakt tækifæri til þess að hitta rithöfunda, tónlistarfólk, kvikmyndagerðarfólk og eldhuga sem eru meðal þeirra áhugaverðustu á Norðurlöndum,“ segir Jakob Oftebro sem um þessar mundir er á skjánum í nýrri þáttaröð af Hamilton.

Verðlaunahátíðin er einstakt tækifæri til þess að hitta rithöfunda, tónlistarfólk, kvikmyndagerðarfólk og eldhuga sem eru meðal þeirra áhugaverðustu á Norðurlöndum

Jakob Oftebro, leikari og kynnir á verðlaunahátíð Norðurlandaráðs

Hennar hátign Mary krónprinsessa afhendir barna- og unglingabókaverðlaunin og á öllum Norðurlöndum verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu þegar verðlaunahafarnir verða kynntir á sviðinu. Verðlaunahafarnir taka við verðlaunagripnum Norðurljósi og 300.000 dönskum krónum.

Önnur verðlaun kvöldsins verða afhent af David Dencik leikara, Selinu Juul sem er fyrrum handhafi umhverfisverðlaunanna, tónskáldinu Phillip Faber og formönnum landsstjórna Grænlands og Færeyja, þeim Múte B. Egede og Bárði á Steig Nielsen.

Útsendingin frá verðlaunahátíðinni, sem framleidd er af DR, verður klukkan 20.00 (að dönskum tíma) á DR 2 og á www.dr.dk. NRK, SVT og Svenska Yle sýna einnig beint frá viðburðinum og RÚV sýnir verðlaunahátíðina þann 3. nóvember. Sjá nánari upplýsingar í sjónvarpsdagskrá hvers lands.

Landsdeild Danmerkur í Norðurlandaráði gegnir hlutverki gestgjafa á verðlaunahátíðinni í ár en hún er haldin í tengslum við 73. þing Norðurlandaráðs 1.-4. nóvember 2021.