Kristin Roskifte hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2019

29.10.19 | Fréttir
Kristin Roskifte

Vinnare av Nordiska rådets barn- och ungdomslitteraturpris 2019: Kristin Roskifte, Norge

Photographer
Magnus Fröderberg
Myndabókin Alle sammen teller eftir norska rithöfundinn Kristin Roskifte hlýtur barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2019.

Verðlaunin voru afhent af Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, við verðlaunaathöfn í beinni útsendingu frá tónleikahúsinu í Stokkhólmi.

Kristin Roskifte hlýtur verðlaunin fyrir verk sem er öðruvísi og einstakt innan sinnar bókmenntagreinar.

Rökstuðningur dómnefndar

Verðlaunabókin í ár hefur dálítið torræðan titil. Hann vísar öðrum þræði til þess að bókin fellur í flokk barnabóka sem kenna börnum tölustafi og innihalda gjarnan ríkulegar myndskreytingar, en hefur einnig aðra og mikilvægari merkingu: að allir teljist með og hafi vægi; að allt fólk sé einstakt og einhvers virði. Myndum af litríkum persónum fer fjölgandi með hverri síðu. Í fyrstu sjáum við einn strák sem horfir upp til stjarnanna og að lokum þúsund manns sem virða fyrir sér sjaldséða halastjörnu. Þó að teikningarnar séu stílhreinar og persónurnar margar hefur hver þeirra einstaklingsbundin sérkenni sem gera lesandanum kleift að þekkja hana aftur. Ein af annarri birtast persónurnar í ýmiss konar ólíku samhengi og umhverfi, hver með sitt eigið, einstaka líf. Texti bókarinnar er bæði ljóðrænn og kíminn, kveikir forvitni lesandans og styður við túlkun hans á myndskreytingunum. Með Alle sammen teller setur Kristin Roskifte texta og myndir í samhengi sem er öðruvísi og einstakt í flokki barnabóka af þessu tagi. Þessa bók er hægt að lesa margoft og koma stöðugt auga á eitthvað nýtt.

Hér má sjá upptöku af verðlaunveitingu Norðurlandaráðs 2019

Verðlaunaveiting Norðurlandaráðs 2019 var send út beint frá tónleikahúsinu í Stokkhólmi og má sjá upptökuna fram til vors 2020 á eftirfarandi krækjum og tíma.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun á ári hverju: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og ungmennabókmenntaverðlaun. Hver verðlaun nema 350 þúsundum danskra króna og eru þau veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.